Merki TR er einkennandi fyrir stofnunina og vel þekkt. Það var upprunalega hannað af Tryggva Tryggvasyni hönnuði og var þá í öðrum litum. Í febrúar 2023 var nýtt merki kynnt og nýtt heildarútlit fyrir TR og var það auglýsingastofan Kontor sem hannaði það. Ekki var um að ræða algjöra endurhönnun á merkinu sjálfu en breytingin samt sem áður afgerandi og fersk.
Merki TR er notað við almenna kynningu á starfsemi stofnunarinnar. Notkun á merkinu er öllum heimil með eftirfarandi skilyrðum:
- Merki TR er notað á þann hátt sem það er sett fram hér á síðunni. Ekki má breyta letri, lit né taka það í sundur eða breyta uppsetningu.
- Mikilvægt er að merkið fái nægt pláss í kringum sig. Gott er að miða við breidd sem jafnast á við laufin sitt hvorum megin við merkið og fyrir ofan og neðan.

JPG JPG
PNG PNG
PDF PDF