Búið er að uppfæra upphæðir greiðslna og frítekjumarka fyrir árið 2023 í ljósi þeirra hækkana sem urðu um áramót samkvæmt ákvörðun Alþingis.
Á síðunni Fjárhæðir á tr.is má sjá upphæðir greiðslna og frítekjumarka örorku- og endurhæfingarlífeyris og ellilífeyris árið 2023. Þar má einnig finna yfirlit yfir þessar fjárhæðir aftur til ársins 2015.
Einnig má benda á gagnlegar síður á tr.is
Upphæðir bóta almannatrygginga
Umönnunarflokkar og greiðslur
Aldurstengd örorkuuppbót
Aðrar fjárhæðir frá 1. janúar 2023
Reiknivél lífeyris verður uppfærð svo fljótt sem auðið er.