Desemberuppbót til foreldra langveikra eða alvarlega fatlaðra barna

22. desember 2022

Desemberuppbót til foreldra langveikra eða alvarlega fatlaðra barna hefur verið greidd. Þau sem eiga rétt á uppbótinni eru foreldrar langveikra eða alvarlega fatlaðra barna sem fá foreldragreiðslur í desember.

Desemberuppbótin er 68.837 kr. til þeirra foreldra sem hafa fengið mánaðarlegar greiðslur allt árið 2022.  Foreldri sem hefur fengið þessar greiðslur skemur en tólf mánuði á árinu 2022 á rétt á hlutfallslegri uppbót í samræmi við þann tíma sem foreldrið hefur fengið greiðslur á árinu. Uppbótin verður þó aldrei lægri en sem nemur 17.209 kr.

Desemberuppbótin er greidd á grundvelli reglugerðar um desemberuppbætur til foreldra langveikra eða alvarlega fatlaðra barna árið 2022 nr.  1421/2022.