Desemberuppbót til einstaklinga sem fá greiddar maka- og umönnunarbætur

22. desember 2022

Desemberuppbót til einstaklinga sem fá greiddar maka- og umönnunargreiðslur hefur verið greidd. Þau sem fengu greiddar maka- og umönnunargreiðslur á árinu 2022 eiga rétt á uppbótinni. 

Full desemberuppbót er 54.674 kr. en greitt er í hlutfalli við þá mánuði sem viðkomandi fékk greidda á árinu 2022. Miðað er við 1/12 fyrir hvern mánuð.

Desemberuppbótin er greidd á grundvelli reglugerðar um desemberuppbætur til maka- og umönnunarbótaþega árið 2022 nr. 1420/2022.