Frumvarp um eingreiðslu samþykkt

14. desember 2022

Alþingi hefur samþykkt frumvarp um eingreiðslu til örorku- og endurhæfingarlífeyrisþega að upphæð 60.300 kr. Undirbúningur greiðslna er þegar hafinn hjá TR og er lögð áhersla á að greiðsla berist svo fljótt sem auðið er.

Eingreiðsluna fá þau sem eiga rétt á greiðslu örorku- eða endurhæfingarlífeyris á árinu 2022. Hafi lífeyrisþegi fengið greitt hluta úr ári er eingreiðslan í hlutfalli við greiðsluréttindi viðkomandi á árinu. Eingreiðslan telst ekki til tekna lífeyrisþega og leiðir ekki til skerðingar annarra greiðslna.

Viðskiptavinir eru hvattir til að fylgjast vel með á Mínum síðum og á tr.is þar sem frétt verður birt þegar greitt hefur verið.