Tæplega 17 milljarðar greiddir í nóvember

06. desember 2022

Fjöldi viðskiptavina TR sem fékk greiðslur í nóvember er 72.404 þar af konur 44.329 (61%) og karlar 28.075 (39%). Greiddir voru 16,7 milljarðar króna, þar af 3,2 milljarðar í staðgreiðslu skatta.

Ellilífeyrisþegar eru fjölmennasti hópurinn eða 38.916, þar af konur 21.344 (55%), karlar 17.572 (45%). Næst stærsti hópurinn eru örorkulífeyrisþegar eða 19.243 þar af konur 11.779 (61%), karlar 7.464 (39%). Endurhæfingarlífeyrisþegar eru 2.772, þar af konur 1.746 (63%), karlar 1.026 (37%).

Greiðslur TR í nóvember voru 8,6 milljarðar kr. vegna ellilífeyris, 6 milljarðar kr. vegna örorku, 1,1 milljarður kr. vegna endurhæfingar og aðrar greiðslur voru 0,9 milljarðar.

Þetta eru mjög svipaðar upphæðir og í októbermánuði.

Sjá nánar í tölfræði TR.