Desemberuppbót ellilífeyrisþega örorku- og endurhæfingarlífeyrisþega verður greidd 1. desember.
Ellilífeyrir
Desemberuppbót ellilífeyrisþega er 64.059 kr. og tekur mið af fjölda mánaða sem viðkomandi fékk greidda á árinu.
Desemberuppbót er tekjutengd eins og aðrar greiðslur til ellilífeyrisþega.
Örorku- og endurhæfingarlífeyrir
Desemberuppbót örorku- og endurhæfingarlífeyrisþega er 30% af mánaðarlegu meðaltali tekjutryggingar á árinu 2022 og 30% af mánaðarlegu meðaltali af greiddri heimilisuppbót. Uppbótin er greidd í samræmi við fjölda mánaða sem viðkomandi fær greiðslur frá TR á yfirstandandi ári. Miðað við fulla tekjutryggingu er desemberuppbót 51.447 kr., en upphæðin breytist í samræmi við það hlutfall sem viðkomandi er með í tekjutryggingu. Þau sem eru með heimilisuppbót fá einnig 17.390 kr. greiddar í desemberuppbót.
Fréttin var uppfærð 8.12.2022