Greiðslur í október 16,1 milljarðar króna

09. nóvember 2022

Fjöldi viðskiptavina TR sem fékk greiðslur í október er 72.294 þar af konur 44.232 (61%) og karlar 28.062 (39%). Greiddir voru 16,1 milljarðar króna, þar af 3,0 milljarðar í staðgreiðslu skatta.

Ellilífeyrisþegar eru fjölmennasti hópurinn eða 38.964, þar af konur 21.317 (55%), karlar 17.647 (45%). Næst stærsti hópurinn eru örorkulífeyrisþegar eða 19.305 þar af konur 11.808 (61%), karlar 7.497 (39%). Endurhæfingarlífeyrisþegar eru 2.687, þar af konur 1.707 (64%), karlar 980 (36%).

Greiðslur TR í október voru 8,4 milljarðar kr. vegna ellilífeyris, 5,8 milljarðar kr. vegna örorku, 1 milljarður kr. vegna endurhæfingar og aðrar greiðslur voru 0,9 milljarðar.

Þetta eru mjög svipaðar upphæðir og í septembermánuði.

Sjá nánar hér í Tryggingavísum.