Greiðslur í september 15,8 milljarðar króna

05. október 2022

Fjöldi viðskiptavina TR sem fékk greiðslur í september er 72.078 þar af konur 44.153 (61%) og karlar 27.925 (39%). Greiddir voru 15,8 milljarðar króna, þar af 2,9 milljarðar í staðgreiðslu skatta.
Ellilífeyrisþegar eru fjölmennasti hópurinn eða 38.736, þar af konur 21.252 (55%), karlar 17.484 (45%). Næst stærsti hópurinn eru örorkulífeyrisþegar eða 19.279 þar af konur 11.810 (61%), karlar 7.469 (39%). Endurhæfingarlífeyrisþegar eru 2.681, þar af konur 1.689 (63%), karlar 992 (37%).
Greiðslur TR í september voru 8,3 milljarðar kr. vegna ellilífeyris, 5,6 milljarðar kr. vegna örorku, 1 milljarður kr. vegna endurhæfingar og aðrar greiðslur voru 0,9 milljarðar.
Þetta eru mjög svipaðar upphæðir og í ágústmánuði.