Fjöldi viðskiptavina TR sem fékk greiðslur í febrúar er 71.788 þar af konur 44.095 (61%) og karlar 27.647 (38%). Greiddir voru 15,2 milljarðar króna, þar af 2,6 milljarðar í staðgreiðslu skatta.
Fjölmennasti hópurinn sem fékk greitt í febrúar eru ellilífeyrisþegar eða 37.933, þar af konur 20.856 (55%) og karlar 17.045 (45%) en næst stærsti hópurinn eru örorkulífeyrisþegar eða 19.219 þar af konur 11.754 (61%) og karlar 7.458 (39%). Endurhæfingarlífeyrisþegar voru 2.858, þar af konur 1.801 (63%) og karlar 1.052 (37%).
Greiðslur TR í febrúar voru 7,9 milljarðar kr. vegna ellilífeyris, 5,4 milljarðar vegna örorku, 1,0 milljarður vegna endurhæfingar og aðrar greiðslur voru 0,8 milljarðar.