Fjöldi viðskiptavina TR sem fékk greiðslur í desember er 72.708 þar af konur 44.670 (61%) og karlar 27.993 (39%).
Fjölmennasti hópurinn sem fékk greitt í desember eru ellilífeyrisþegar 37.482, þar af konur 20.662 (55%) og karlar 16.791 (45%) en næst stærsti hópurinn eru örorkulífeyrisþegar 18.777 þar af konur 11.532 (61%) og karlar 7.239 (39%). Endurhæfingarlífeyrisþegar voru 2.900, þar af konur 1.831 (63%) og karlar 1.065 (37%).
Greiðslur TR í desember voru um 8,7 milljarðar kr. vegna ellilífeyris, um 6,9 milljarður vegna örorku, um 1,3 milljarður vegna endurhæfingar og aðrar greiðslur voru um 0,9 milljarður.
Auknar greiðslur í desember eru til komnar vegna desemberuppbóta og eingreiðslu til örorku- og endurhæfingarlífeyrisþega.