Greiðslur Tryggingastofnunar til viðskiptavina í nóvember námu 14,5 milljörðum króna, þar af 2,6 milljarðar vegna staðgreiðslu skatta.
Fjöldi viðskiptavina TR sem fékk greiðslur í nóvember er 70.875 þar af konur 43.694 (62%) og karlar 27.170 (38%).
Fjölmennasti hópurinn sem fékk greitt í nóvember eru ellilífeyrisþegar 37.440, þar af konur 20.649 (55%) og karlar 16.791 (45%) en næst stærsti hópurinn eru örorkulífeyrisþegar 18.698 þar af konur 11.499 (62%) og karlar 7.193 (38%). Endurhæfingarlífeyrisþegar voru 2.863, þar af konur 1.798 (63%) og karlar 1.061 (37%).
Greiðslur TR í nóvember voru um 7,5 milljarðar kr. vegna ellilífeyris, um 5,1 milljarður vegna örorku, um 1,0 milljarður vegna endurhæfingar og aðrar greiðslur voru um 0,8 milljarður.