Desemberuppbót ellilífeyrisþega og örorku- og endurhæfingarlífeyrisþega verður greidd 1. desember.
Ellilífeyrir
Desemberuppbót ellilífeyrisþega er 60.189 kr. og tekur mið af fjölda mánaða sem viðkomandi fékk greidda á árinu. Desemberuppbót er tekjutengd eins og aðrar greiðslur til ellilífeyrisþega.
Örorku og endurhæfingarlífeyrir
Desemberuppbót örorku- og endurhæfingarlífeyrisþega er 30% af greiddri tekjutryggingu á árinu 2021 og 30% af greiddri heimilisuppbót. Uppbótin er greidd í samræmi við fjölda mánaða sem viðkomandi fær greiðslur frá TR á yfirstandandi ári. Miðað við fulla tekjutryggingu er desemberuppbót 47.881 kr. en ef viðkomandi er með heimilisuppbót bætast 16.184 kr. við. Desemberuppbót breytist í samræmi við breytingar á tekjutryggingu sem getur haft lækkun í för með sér.