Greiðslur TR í september um 14,3 milljarðar

12. október 2021

Greiðslur Tryggingastofnunar til viðskiptavina í september námu 14,7 milljörðum króna, þar af 2,7 milljarðar vegna staðgreiðslu skatta. 

Fjöldi viðskiptavina TR sem fékk greiðslur í september er 70.622 þar af konur 43.552 (62%) og karlar 27.060 (38%).

Fjölmennasti hópurinn sem fékk greitt í september eru ellilífeyrisþegar 37.350, þar af konur 20.569 (55%) og karlar 16.781 (45%) en næst stærsti hópurinn eru örorkulífeyrisþegar 18.782 þar af konur 11.548 (61%) og karlar 7.229 (38%). Endurhæfingarlífeyrisþegar voru 2.866, þar af konur 1.812 (63%) og karlar 1.050 (37%).

Greiðslur TR í september voru um 7,6 milljarðar kr. vegna ellilífeyris, um 5,3 milljarður vegna örorku, um 1,0 milljarður vegna endurhæfingar og aðrar greiðslur voru um 0,8 milljarður.