Greiðslur TR í ágúst um 14,3 milljarðar

07. september 2021

Greiðslur Tryggingastofnunar til viðskiptavina í ágúst námu 14,3 milljörðum króna, þar af 2,6 milljarðar vegna staðgreiðslu skatta. 

Fjöldi viðskiptavina TR sem fékk greiðslur í ágúst er 70.580 þar af konur 43.542 (62%) og karlar 27.030 (38%).

Fjölmennasti hópurinn sem fékk greitt í ágúst eru ellilífeyrisþegar 37.103, þar af konur 20.445 (55%) og karlar 16.658 (45%) en næst stærsti hópurinn eru örorkulífeyrisþegar 18.686 þar af konur 11.483 (61%) og karlar 7.198 (39%). Endurhæfingarlífeyrisþegar voru 2.974, þar af konur 1.885 (63%) og karlar 1.086 (37%).

Greiðslur TR í ágúst voru um 7,5 milljarðar kr. vegna ellilífeyris, um 5,0 milljarður vegna örorku, um 1,0 milljarður vegna endurhæfingar og aðrar greiðslur voru um 0,8 milljarðar.