Greiðslur Tryggingastofnunar til viðskiptavina í júní námu um 18,7 milljörðum króna, þar af um 4,1 milljarðar vegna staðgreiðslu skatta.
Fjöldi viðskiptavina TR sem fékk greiðslur í júní er 73.160 þar af konur 44.890 (61%) og karlar 28.264 (39%).
Fjölmennasti hópurinn sem fékk greitt í júní eru ellilífeyrisþegar 38.589, þar af konur 21.199 (55%) og karlar 17.390 (45%) en næst stærsti hópurinn eru örorkulífeyrisþegar 19.024 þar af konur 11.654 (65%) og karlar 7.365 (39%). Endurhæfingarlífeyrisþegar voru 3.112, þar af konur 1.975 (63%) og karlar 1.136 (37%).
Greiðslur TR í júní voru um 10,2 milljarðar kr. vegna ellilífeyris, um 6,5 milljarður vegna örorku, um 1,1 milljarður vegna endurhæfingar og aðrar greiðslur voru um 0,8 milljarðar.
Ástæðan fyrir auknum greiðslum á milli mánaðanna maí og júní er sú að inneignir sem verða til við uppgjör eru greiddar út í júní.