Rúmlega 14,5 milljarðar greiddir í mars

06. apríl 2021

Greiðslur Tryggingastofnunar til viðskiptavina í mars námu um 14,5 milljörðum króna, þar af um 2,6 milljarðar vegna staðgreiðslu skatta.

Fjöldi viðskiptavina TR sem fékk greiðslur í mars er 70.752 þar af konur 43.706 (62%) og karlar 27.042 (38%).

Fjölmennasti hópurinn sem fékk greitt í mars eru ellilífeyrisþegar 36.847, þar af konur 20.345 (55%) og karlar 16.502 (45%) en næst stærsti hópurinn eru örorkulífeyrisþegar 18.760 þar af konur 11.516 (62%) og karlar 7.241 (38%).

Greiðslur TR í mars voru um 7,5 milljarðar kr. vegna ellilífeyris, um 5,1 milljarðar kr. vegna örorku, um 1 milljarður vegna endurhæfingar og aðrar greiðslur voru um 1 milljarður.