Rúmlega 14,3 milljarðar greiddir í febrúar

05. mars 2021

Greiðslur Tryggingastofnunar til viðskiptavina í febrúar námu um 14,3 milljörðum króna, þar af um 2,4 milljarðar vegna staðgreiðslu skatta.

Fjöldi viðskiptavina TR sem fékk greiðslur í febrúar er 70.230 þar af konur 43.431 (62%) og karlar 26.785 (38%).

Fjölmennasti hópurinn sem fékk greitt í febrúar eru ellilífeyrisþegar 36.694, þar af konur 20.265 (55%) og karlar 16.429 (45%) en næst stærsti hópurinn eru örorkulífeyrisþegar 18.721 þar af konur 11.508 (62%) og karlar 7.210 (38%).

Greiðslur TR í febrúar voru um 7,4 milljarðar kr. vegna ellilífeyris, um 5 milljarðar kr. vegna örorku, um 1 milljarður vegna endurhæfingar og aðrar greiðslur voru um 1 milljarður.