Greiðslur Tryggingastofnunar til viðskiptavina í desember námu um 16,6 milljörðum króna, þar af um 3,3 milljarðar vegna staðgreiðslu skatta.
Fjöldi viðskiptavina TR sem fékk greiðslur í desember er 71.387 þar af konur 44.110 (62%) og karlar 27.277 (38%).
Fjölmennasti hópurinn sem fékk greitt í desember eru ellilífeyrisþegar 36.368, þar af konur 20.146 (55%) og karlar 16.222 (45%) en næst stærsti hópurinn eru örorkulífeyrisþegar 18.648 þar af konur 11.475 (62%) og karlar 7.173 (38%).
Greiðslur TR í desember voru um 8,2 milljarðar kr. vegna ellilífeyris, um 6,4 milljarðar kr. vegna örorku, um 1,2 vegna endurhæfingar og aðrar greiðslur voru um 2 milljarðar.