Desemberuppbót til einstaklinga sem fá greiddar maka- og umönnunarbætur

21. desember 2020

Desemberuppbót til einstaklinga sem fá greiddar maka- og umönnunargreiðslur hefur verið greidd. Þau sem eiga rétt á þessari uppbót eru þau sem fengu greiddar maka- og umönnunargreiðslur á árinu 2020. 

Full desemberuppbót er 48.520 kr. en greitt er í hlutfalli við þá mánuði sem viðkomandi fékk greidda á árinu 2020.

Desemberuppbótin er greidd á grundvelli reglugerðar um desemberuppbætur til maka og umönnunarbótaþega nr. 1260/2020. Þetta er í fyrsta sinn sem þessi hópur fær greidda desemberuppbót.