Um 24.000 örorku – og endurhæfingarlífeyrisþegar fengu eingreiðslu

15. desember 2020

Búið er að inna af hendi eingreiðslu til örorku- og endurhæfingarlífeyrisþega í samræmi við lög nr. 127/2020 sem samþykkt voru á Alþingi 9. desember sl. og birt í Stjórnartíðindum 10. desember sl.  Full eingreiðsla er 50.000 kr. og fær örorku- og endurhæfingarlífeyrisþeginn upphæð sem er í samræmi við fjölda mánaða sem viðkomandi hefur fengið greiddan lífeyri á árinu. Hafi hann/hún t.d. fengið greiddan lífeyri í 6 mánuði þá á viðkomandi rétt á 25.000 kr. Greiðslan er ótekjutengd og skattfrjáls. Það eru um 24.000 örorku- og endurhæfingarlífeyrisþegar sem hafa fengið umrædda greiðslu.

Undirbúningur þessarar greiðslu hefur staðið yfir í nokkurn tíma hjá TR og tókst að ljúka lokakeyrslu í gegnum tölvu- og greiðslukerfi stofnunarinnar um síðustu helgi þannig að unnt var að greiða í gær, 14.desember. Þegar áform um þessa greiðslu voru kynnt var miðað við að inna eingreiðsluna af hendi eigi síðar en 18. desember og hefur það tekist með samstilltu átaki. Lög nr. 127/2020 um eingreiðslu