Viðbótarumönnunargreiðsla vegna Covid-19 – umsóknarfrestur til 31. desember

20. nóvember 2020

Um áramót rennur út frestur til að sækja um viðbótarumönnunargreiðslu í samræmi við  reglugerð nr. 504/1997 um fjárhagslega aðstoð við framfærendur fatlaðra og langveikra barna. Samkvæmt breytingu á reglugerðinni sem var birt 29. maí sl. er heimilt að greiða  framfærendum barna sem voru með gilt  umönnunarmat á tímabilinu 16.mars til 4.maí sl. eingreiðslu sem nemur 25% af fullum umönnunargreiðslum, vegna aukinnar umönnunar barna sem skapast  hefur vegna COVID-19 faraldurs. Upphæð eingreiðslunnar er 48.108 kr.

TR birti um miðjan nóvember bréf á Mínum síðum TR til allra foreldra barna með umönnunarmat sem hafa ekki sótt um viðbótarumönnunargreiðslu, en það munu vera um 3.500 foreldrar og framfærendur, þar sem bent var á möguleikann að sækja um

Skilyrði fyrir greiðslu er að eftirfarandi aðstæður hafi skapast á tímabilinu 16. mars til 4. maí:

  • Þjónusta, t.d.  skóli eða dagvistun hafi legið niðri
  • Barn hafi ekki getað sótt þjónustu vegna ástandsins
  • Undirliggjandi sjúkdómar barns hafi valdið því að það þurfti að vera heima (vandi skilgreindur sem áhættuþáttur af embætti landlæknis fyrir alvarlegri sýkingu vegna COVID-19).

Jafnframt er skilyrði að þessar aðstæður hafi varað í a.m.k. 15 virka daga á framangreindu tímabili.

Hægt er að senda inn umsókn í gegnum Mínar síður á www.tr.is en með umsókn um viðbótarumönnunargreiðslu vegna Covid-19 þarf að fylgja:

  • Staðfesting frá viðkomandi stofnun á fjarveru barns frá skóla eða dagvistun á tímabilinu 16.03.2020-04.05.2020. Í staðfestingunni þarf einnig að koma fram hvaða daga vistun/þjónusta var ekki í boði.

Eins og áður kom fram þá er umsóknarfrestur til 31.12.2020

Afgreiðslutími umsókna getur verið allt að 8 vikur eftir að umbeðin gögn liggja fyrir.

Sjá einnig frétt á vef tr.is frá 15. júní 2020.

Sjá nánar frétt á heimasíðu Stjórnarráðs Íslands frá 3. júní 2020