Greiðslur Tryggingastofnunar til viðskiptavina í september námu um 13,7 milljörðum króna, þar af um 2,6 milljarðar vegna staðgreiðslu skatta.
Fjöldi viðskiptavina TR sem fékk greiðslur í september er 69.337 þar af konur 43.027 (62%) og karlar 26.310 (38%). Fjölmennasti hópurinn sem fékk greitt í september eru ellilífeyrisþegar 36.047, þar af konur 19.969 (55%) og karlar 16.078 (45%) en næst stærsti hópurinn eru örorkulífeyrisþegar 18.614 þar af konur 11.455 (62%) og karlar 7.159 (38%).
Greiðslur TR í september voru um 7,2 milljarðar kr. vegna ellilífeyris, um 4,8 milljarðar kr. vegna örorku og aðrar greiðslur voru um 1,7 milljarður.