TR býður áfram upp á öfluga fjarþjónustu fyrir viðskiptavini sína vegna þeirra aðstæðna sem hafa skapast í samfélaginu vegna COVID-19. Á meðal viðskiptavina TR eru margir sem teljast til viðkvæmra hópa og leggur TR því áfram áherslu á góða fjarþjónustu sem við hvetjum alla viðskiptavini að nýta sér. Starfsemi TR hefur ekki verið skert vegna COVID-19 og mánaðarlegar greiðslur berast viðskiptavinum eins og venjulega.
Mínar síður eru alltaf aðgengilegar. Þar er m.a. hægt að sækja um allar bætur og breyta tekjuáætlun. Hægt er að setja fylgigögn með umsóknum beint inn á Mínar síður og einnig er hægt að senda fyrirspurnir til TR sem er svarað í tölvupósti. Til að komast á Mínar síður þarf íslykil eða rafræn skilríki.
Símaver TR er opið frá kl. 9.00 til 15.00 alla virka daga í síma 560 4400. Þar er m.a. veitt aðstoð og ráðgjöf til að komast inn á Mínar síður auk þess sem allar upplýsingar er varða bætur og lífeyrisgreiðslur eru veittar.
Í netfanginu tr@tr.is er öllum fyrirspurnum er svarað svo fljótt sem auðið er.
Á heimasíðu TR, www.tr.is eru allar nauðsynlegar upplýsingar um bótaflokka og greiðslur. Einnig er bent á spurningar og svör við algengum spurningum.
Reiknivél TR á heimasíðu TR er alltaf aðgengileg. Þar er hægt að reikna út mögulegar greiðslur með mismunandi forsendum.
Afgreiðsla TR í þjónustumiðstöð í Hlíðasmára 11 í Kópavogi er opin alla virka daga frá kl. 9.00 til 15.00. Við bjóðum viðskiptavini velkomna í þjónustumiðstöðina og gætum þar að því að virða tilmæli um sóttvarnir vegna COVID-19. Jafnframt er opið hjá umboðsmönnum TR um land allt.
Bréfpóstur. Ef ekki er unnt að nota rafræn samskipti eða hringja er hægt að senda bréf í pósti til TR eða koma með gögn á pappír og setja í póstkassa í Hlíðasmára 11. Póstkassinn er tæmdur tvisvar á dag alla virka daga.
Við setjum metnað okkar í að svara öllum fyrirspurnum og aðstoða viðskiptavini með upplýsingar og umsóknir svo fljótt sem auðið er.
Ítrekum hvatningu um að viðskiptavinir nýti sér örugga og aðgengilega fjarþjónustu TR.
In English
We encourage our customers to use our online and digital services. Our main online/digital services are:
Web: www.tr.is
My Pages (Mínar síður): minarsidur.tr.is
e-mail: tr@tr.is
Phone: 560 4400 (Open 9.00 – 15.00, Mon.-Fri.)
The Service Centre at TR in Hlíðasmári 11 in Kópavogur is open 9.00 -15.00 Monday – Friday.