Örorku- og endurhæfingarlífeyrisþegar fá greidda 20.000 kr. eingreiðslu í dag. Greiðslan er undanþegin skatti og tekur ekki mið af öðrum tekjum eða hlutfalli lífeyris.
Þeir örorku- og endurhæfingarlífeyrisþegar sem eiga rétt á orlofsuppbót 2020 eiga rétt á eingreiðslunni ásamt þeim sem áttu eingöngu rétt á desemberuppbót 2019. Eingreiðslan er greidd í samræmi við lög um breytingu á ýmsum lögum til að mæta efnahagslegum áhrifum heimsfaraldurs kórónuveiru sem voru birt í Stjórnartíðindum í dag.