TR býður áfram upp á aukna fjarþjónustu fyrir viðskiptavini sína vegna þeirra aðstæðna sem hafa skapast í samfélaginu vegna COVID-19. Stjórnvöld hafa lýst yfir neyðarstigi vegna COVID-19 og beinir sóttvarnalæknir því sérstaklega til þeirra sem teljast til viðkvæmra hópa, einkum þeirra sem eru með undirliggjandi sjúkdóma og eldri einstaklinga að forðast margmenni. Á meðal viðskiptavina TR eru margir sem teljast til viðkvæmra hópa og leggur TR því áherslu á að efla fjarþjónustu á meðan neyðarstig varir. Er þetta gert með velferð viðskiptavina að leiðarljósi.
Afgreiðsla TR í þjónustumiðstöð í Hlíðasmára 11 er er nú opin á ný alla virka daga frá kl. 9:00 til 15:00. Við bjóðum viðskiptavini velkomna í þjónustumiðstöðina og gætum þar að því að virða tilmæli um sóttvarnir vegna COVID-19. Jafnframt er opið hjá umboðsmönnum TR um land allt.
Áfram hvetjum við til þess að viðskiptavinir nýti sér öruggar og aðgengilegar þjónustuleiðir:
Mínar síður eru alltaf aðgengilegar. Þar er m.a. hægt að sækja um allar bætur og breyta tekjuáætlun. Hægt er að setja fylgigögn með umsóknum beint inn á Mínar síður og einnig er hægt að senda fyrirspurnir til TR sem er svarað í tölvupósti. Til að komast á Mínar síður þarf íslykil eða rafræn skilríki.
Símaver TR er opið frá kl. 9:00 til 15:00 alla virka daga í síma 560-4400. Þar er m.a. veitt aðstoð og ráðgjöf til að komast inn á Mínar síður auk þess sem allar upplýsingar er varða bætur og lífeyrisgreiðslur eru veittar.
Netfangið tr@tr.is. Öllum fyrirspurnum er svarað svo fljótt sem auðið er.
Heimasíða TR er alltaf aðgengileg. Á slóðinni www.tr.is eru allar nauðsynlegar upplýsingar um bótaflokka og greiðslur. Einnig er bent á spurningar og svör við algengum spurningum.
Reiknivél TR er á heimasíðu TR. Þar er hægt að reikna út mögulegar greiðslur með mismunandi forsendum. Reiknivél TR er alltaf aðgengileg.
Bréfpóstur. Ef ekki er unnt að nota rafræn samskipti eða hringja er hægt að senda bréf í pósti til TR eða koma með gögn á pappír og leggja í póstkassa í Hlíðasmára 11 í Kópavogi. Póstkassinn er tæmdur tvisvar á dag alla virka daga.
Starfsemin TR hefur ekki verið skert vegna COVID-19 og mánaðarlegar greiðslur berast viðskiptavinum eins og venjulega. Við setjum metnað okkar í að svara öllum fyrirspurnum og aðstoða þig með upplýsingar og umsóknir.
In English
The Service Centre at TR in Hlíðasmári 11 in Kópavogur is now open. We encourage our customers to use our online and digital services. Our main online/digital services are:
Web: www.tr.is
My Pages (Mínar síður): minarsidur.tr.is
e-mail: tr@tr.is
Phone: 560 4400 (Open 9.00 – 15.00, Mon.-Fri.)