Greiðslur Tryggingastofnunar til viðskiptavina í mars námu rúmum 13,2 milljörðum króna, þar af um 2,5 milljarðar vegna staðgreiðslu skatta. Fjöldi viðskiptavina TR sem fékk greiðslur í mars er 68.417 þar af konur 42.595 (62%) og karlar 25.822 (38%). Fjölmennasti hópurinn eru ellilífeyrisþegar 35.253 þar af konur 19.603 (56%) og karlar 15.650 (44%) en næst stærsti hópurinn eru örorkulífeyrisþegar 18.661 þar af konur 11.414 (61%) og karlar 7.247 (39%).
Greiðslur TR í mars voru um 6,9 milljarðar kr. vegna ellilífeyris, um 4,7 milljarðar kr. vegna örorku og aðrar greiðslur voru tæpir 1,6 milljarður kr.