Fjárhæðir lífeyrisgreiðslna og breytingar 1. janúar

02. janúar 2020

Fjárhæðir greiðslna TR hækka um 3,5% frá 1. janúar 2020. Ellilífeyrir verður að hámarki 256.789 kr. á mánuði og lágmarksframfærslutrygging örorkulífeyrisþega verður 255.834 kr. hjá þeim sem fá ekki greidda heimilisuppbót.

Ellilífeyrir:

  • Ellilífeyrir er að hámarki 256.789 kr. á mánuði.
  • Heimilisuppbót er að hámarki 64.889 kr. á mánuði.
  • Ellilífeyrir og tengdar greiðslur eru að hámarki 321.678 kr. á mánuði hjá þeim sem búa einir (með heimilisuppbót).
  • Almennt frítekjumark skattskyldra tekna er 25.000 kr. á mánuði.
  • Sérstakt frítekjumark atvinnutekna er 100.000 kr. á mánuði.

Örorkulífeyrir og endurhæfingarlífeyrir:

  • Örorkulífeyrir er að hámarki 48.108 kr. á mánuði.
  • Tekjutrygging er að hámarki 154.058 kr. á mánuði.
  • Aldurstengd örorkuuppbót er að hámarki 48.108 kr. á mánuði (100%).
  • Heimilisuppbót er að hámarki 52.073 kr. á mánuði.
  • Lágmarksframfærslutrygging (vegna sérstakrar uppbótar til framfærslu) er:
    • 321.678 kr. á mánuði hjá þeim sem fá greidda heimilisuppbót.
    • 255.834 kr. á mánuði hjá öðrum.

Almennt:

  • Greiðslur eru reiknaðar út frá tekjuáætlun sem lífeyrisþegar bera ábyrgð á að leiðrétta ef þörf er á.
  • Hægt er að skoða og breyta tekjuáætlun á mínum síðum á tr.is.
  • Endurreikningur vegna greiðslna ársins 2020 fer fram árið 2021 þegar staðfest skattframtal liggur fyrir.

Nánari upplýsingar um fjárhæðir er að finna hér.

Nýjar og breyttar reglugerðir sem taka gildi 1. janúar 2020:

1120/2019 – Ráðstöfunarfé 2020

1121/2019 – Fjárhæðir 2020

1122/2019 – Frítekjumörk 2020

1123/2019 – Heimilisuppbót og uppbætur á lífeyri 2020

1124/2019 – Eingreiðslur 2020

1125/2019 – Bifreiðamál 2020

1126/2019 – Foreldragreiðslur 2020

1127/2019 – Lifandi líffæragjafar 2020

1128/2019 – Útreikningur, endurreikningur og uppgjör tekjutengdra bóta og vistunarframlags

1130/2019 – Slysatryggingar almannatrygginga 2020

1147/2019 – Stofnanaþjónusta fyrir aldraða 2020

1239/2019 - Sveiganleg taka ellilífeyris og heimilisuppbótar