Greiðslur Tryggingastofnunar í október námu um 12,7 milljörðum króna, þar af um 2,5 milljarðar vegna staðgreiðslu skatta. Um er að ræða mánaðarlegar greiðslur vegna lífeyris og annarra greiðslna.
Fjöldi viðskiptavina TR sem fékk greiðslur í október er 67.955, þar af karlar 25.464 og konur 42.491.
Fjölmennasti hópur viðskiptavina TR sem fengu greiðslur í október eru ellilífeyrisþegar 34.779 en næst stærsti hópurinn eru örorkulífeyrisþegar 18.564. Greiðslur TR í október voru um 6,7 milljarðar kr. vegna ellilífeyris, tæpir 4,6 milljarðar kr. vegna örorku og tæpur 1,4 milljarður kr. vegna annarra greiðslna.