Greiðslur TR rúmir 17 milljarðar í september

09. október 2019

Greiðslur Tryggingastofnunar í september námu um 17,1 milljörðum króna, þar af um 4,3 milljarðar vegna staðgreiðslu skatta. Um er að ræða mánaðarlegar greiðslur vegna lífeyris og annarra greiðslna.

Fjöldi viðskiptavina TR sem fékk greiðslur í september er 71.164, þar af karlar 27.122 og konur 44.042.

Fjölmennasti hópur viðskiptavina TR sem fengu greiðslur í september eru ellilífeyrisþegar 37.764 en næst stærsti hópurinn eru örorkulífeyrisþegar 18.594. Greiðslur TR í september voru 11,1 milljarðar kr. vegna ellilífeyris, 4,6 milljarðar kr. vegna örorku og 1,4 milljarður kr. vegna annarra greiðslna.

Greiðslur í september eru um 5 milljörðum hærri en í venjulegum mánuði. Skýringin er greiðslur til ellilífeyrisþega vegna janúar og febrúar 2017 í kjölfar dóms Landsréttar.