Uppgjör endurreiknings fyrir árið 2010
Samkvæmt lögum um almannatryggingar greiðir Tryggingastofnun lífeyrisþegum bætur í hverjum mánuði á grundvelli áætlaðra árstekna hvers og eins. Þegar endanlegar upplýsingar um tekjur síðasta árs liggja fyrir á stofnunin að endurreikna bótafjárhæðir á grundvelli raunverulegra tekna. Ef í ljós kemur við þennan endurreikning að misræmi er á milli greiðslna og raunverulegs bótaréttar fer fram uppgjör þar sem bótafjárhæðir eru leiðréttar.
Þetta þýðir að hafi lífeyrisþegi fengið of lágar greiðslur á árinu (vangreiðsla), til dæmis vegna þess að í tekjuáætlun var gert ráð fyrir hærri tekjum en raun varð á, fær hann vangreiðsluna greidda út. Áður en til útborgunar á inneign kemur verða hugsanlegar eldri skuldir lífeyrisþega við Tryggingastofnun greiddar upp. Hafi lífeyrisþegi aftur á móti fengið of háar greiðslur (ofgreiðsla), svo sem vegna þess að árstekjur hans urðu hærri en gert hafði verið ráð fyrir eða misfarist hefur að láta Tryggingastofnun vita um tekjubreytingar eða samsetningu tekna, er ofgreiðslan innheimt.
Hér má sjá töflu sem sýnir mismunandi vægi tekna á lífeyri og tengdra greiðslna á árinu 2010:
Hér má sjá upplýsingar um þátttöku í dvalarkostnaði:
Nokkur mikilvæg atriði:
Inneign:- Tryggingastofnun mun greiða inneignir til þeirra lífeyrisþega sem inneignir eiga þann 5. ágúst næstkomandi.
- Meginreglan er að lífeyrisþegar endurgreiði ofgreiddan lífeyri og tengdar bætur á 12 mánuðum frá því að krafa stofnast. Hægt er að semja um lengri endurgreiðslutíma ef greiðsluþegi á erfitt með að greiða innan þess tíma. Við mat á slíkri beiðni er tekið mið af upplýsingum um heildartekjur, eignastöðu og öðrum aðstæðum. Nánar má sjá hér.
- Bent er á að hægt er að dreifa greiðslum sem stafa af fjármagnstekjum í 10 ár en skilyrði fyrir dreifingu er að tekjurnar hafi verið leystar út í einu lagi.
- Frestur til að andmæla endurreikningi er til 21. ágúst 2011. Andmæli verða að vera á þar tilgerðu eyðublaði.
Umfjöllun um uppgjör og endurreikning fyrir árið 2010
Eyðublöð
- Andmælaeyðublað
- Beiðni um frádrátt af bótum
- Boðgreiðslur vegna ofgreiddra bóta
- Beiðni um dreifingu tekna
Lög og reglugerðir til grundvallar endurreikningi
-
Lög um almannatryggingar nr.100/2007
-
Reglugerð nr. 598/2009 um útreikning, endurreikning og uppgjör tekjutengdra bóta og vistunarframlags frá Tryggingastofnun ríkisins.
-
Breytingareglugerð nr. 1056/2009
Tryggur.is
Á þjónustuvefnum www.tryggur.is getur þú sinnt þínum málum á öruggu svæði og sent upplýsingar rafrænt.
Veflykill ríkisskattstjóra veitir aðgang að www.tryggur.is Þetta gildir líka um þá lífeyrisþega sem eru búsettir erlendis, sem geta nú sótt um veflykil ríkisskattstjóra.
