Uppgjör endurreiknings fyrir árið 2009
Samkvæmt lögum um almannatryggingar greiðir Tryggingastofnun lífeyrisþegum bætur í hverjum mánuði á grundvelli áætlaðra árstekna hvers og eins. Þegar endanlegar upplýsingar um tekjur síðasta árs liggja fyrir á stofnunin að endurreikna bótafjárhæðir á grundvelli raunverulegra tekna. Ef í ljós kemur við þennan endurreikning að misræmi er á milli greiðslna og raunverulegs bótaréttar fer fram uppgjör þar sem bótafjárhæðir eru leiðréttar.
Um er að ræða endurreikning grunnlífeyris, tekjutryggingar, heimilisuppbótar, aldurstengdrar örorkuuppbótar, orlofs- og desemberuppbóta og vistunarframlags.
Þetta þýðir að hafi lífeyrisþegi fengið of lágar greiðslur á árinu, til dæmis vegna þess að í tekjuáætlun var gert ráð fyrir hærri tekjum en raun varð á, fær hann vangreiðsluna greidda út. Áður en til útborgunar á inneign kemur verða hugsanlegar eldri skuldir lífeyrisþega við Tryggingastofnun greiddar upp. Hafi lífeyrisþegi aftur á móti fengið of háar greiðslur, svo sem vegna þess að árstekjur hans urðu hærri en gert hafði verið ráð fyrir eða misfarist hefur að láta Tryggingastofnun vita um tekjubreytingar eða samsetningu tekna, er ofgreiðslan innheimt.
Hér má sjá töflur sem sýna mismunandi vægi tekna á greiðslur lífeyrisréttinda og bóta.
Skýringar á niðurstöðum uppgjörs
Inneign:- Tryggingastofnun mun greiða inneignir til þeirra lífeyrisþega sem inneignir eiga þann 6. ágúst næstkomandi.
- Meginreglan er að lífeyrisþegar endurgreiði ofgreiddan lífeyri og tengdar bætur á 12 mánuðum frá því að krafa stofnast. Hægt er að semja um lengri endurgreiðslutíma ef greiðsluþegi á erfitt með að greiða innan þess tíma. Við mat á slíkri beiðni er tekið mið af upplýsingum um heildartekjur, eignastöðu og öðrum aðstæðum.
- Bent er á að hægt er að dreifa greiðslum sem stafa af fjármagnstekjum í 10 ár en skilyrði fyrir dreifingu er að tekjurnar hafi verið leystar út í einu lagi.
- Frestur til að andmæla endurreikningi er til 26. ágúst 2010. Andmæli verða að vera á þar tilgerðu eyðublaði.
Umfjöllun um uppgjör og endurreikning fyrir árið 2009
Eyðublöð
- Andmælaeyðublað
- Beiðni um frádrátt af bótum
- Boðgreiðslur vegna ofgreiddra bóta
- Beiðni um dreifingu tekna
Lög og reglugerðir til grundvallar endurreikningi
- Lög um almannatryggingar nr.100/2007
- Reglugerð nr. 598/2009 um útreikning, endurreikning og uppgjör tekjutengdra bóta og vistunarframlags frá Tryggingastofnun ríkisins.
Tryggur.is
Á þjónustuvefnum www.tryggur.is er greiðsluáætlun lífeyris fyrir allt árið, þar er hægt að breyta og skila inn tekjuáætlun og sækja mánaðarlega greiðsluseðla.
Á vefnum er jafnframt auðvelt að skoða með bráðabirgðaútreikningi hvaða áhrif ýmsar mögulegar breytingar hafa á greiðslur.
Eins getur þú sent beiðni um samninga vegna greiðslu skulda og gefið öðrum umboð til þess að sinna þínum málum á Trygg.
Til að komast inn á Tryggur.is þarf að nota veflykil ríkisskattstjóra.
