Útvarpspistlar
Tryggingastofnun vikulega í Samfélaginu í nærmynd
Í tilefni af 75 ára afmæli Tryggingastofnunar var umfjöllun um stofnunina í þættinum Samfélagið í nærmynd á Rás 1.
Á hverjum fimmtudegi í byrjun árs var tiltekið efni tekið fyrir sem tengist Tryggingastofnun. Viðmælendur voru starfsmenn eða stjórnarmenn Tryggingastofnunar.
Umfjöllunin var fyrsta dagskrárefni hvers þáttar.
- Tryggingastofnun. Viðmælandi var Sigríður Lillý Baldursdóttir, forstjóri Tryggingastofnunar. Útvarpað 17. febrúar.
- Lög um almannatryggingar og félagslega þjónustu. Viðmælandi var Ragna Haraldsdóttir, framkvæmdastjóri Alþjóða- og stjórnsýslusviðs. Útvarpað 24. febrúar.
- Hvaða máli skipta almannatryggingar fyrir samfélagið? Viðmælandi var Stefán Ólafsson, formaður stjórnar Tryggingastofnunar. Útvarpað 3. mars.
- Lífeyrishringurinn. Viðmælandi var Sólveig Hjaltadóttir, framkvæmdastjóri Réttindasviðs. Útvarpað 10. mars.
- Uppbygging og hugmyndafræði almannatryggingakerfisins. Viðmælandi var Sigríður Lillý Baldursdóttir, forstjóri Tryggingastofnunar. Útvarpað 17. mars 2011. Viðtalið hefst á 17. mínútu.
- Hvað er örorka og endurhæfingarlífeyrir? Viðmælendur voru Haraldur Jóhannesson, tryggingayfirlæknir og Auðbjörg Nanna Ingvarsdóttir, félagsráðgjafi. Útvarpað 24. mars.
- Umfang starfsemi Tryggingastofnunar – Fjöldi, fé og kerfi. Viðmælendur voru Hermann Ólason, framkvæmdastjóri Upplýsingatæknisviðs og Runólfur B. Leifsson, framkvæmdastjóri Fjármála- og rekstrarsviðs. Útvarpað 31. mars.
- 75 ára afmæli Tryggingastofnunar. Bein útsending frá Laugavegi 114. Útvarpað 1. apríl.
- Eftirlit og öryggi. Viðmælandi var Halla Bachman deildarstjóri eftilits. Útvarpað 7. apríl.
- Þjónusta fyrir lífeyrisþega - breytingar í tímans rás. Viðmælendur voru Þorgerður Ragnarsdóttir, framkvæmdastjóri Þjónustu- og kynningarsviðs og Ásta J. Arnardóttir deildarstjóri kynningarmála. Útvarpað 28. apríl.
- Réttindi barnafjölskylda. Viðmælandi var Sverrir Óskarsson, félagsráðgjafi hjá Tryggingastofnun. Útvarpað 5. maí.
- Horft til framtíðar. Viðmælandi var Sigríður Lillý Baldursdóttir, forstjóri. Útvarpað 19.maí.
