Tryggingastofnun
Þinn réttur

Örorkustyrkur

Örorkustyrkur er hugsaður fyrir einstaklinga sem bera verulegan aukakostnað vegna örorku sinnar til dæmis vegna lyfja, læknishjálpar eða hjálpartækja.

 

Örorkustyrkur er hugsaður fyrir einstaklinga sem bera verulegan aukakostnað vegna örorku sinnar til dæmis vegna lyfja, læknishjálpar eða hjálpartækja.

Hverjir eiga mögulegan rétt á örorkustyrk?

Þeir sem eru á aldrinum 18-67 ára geta átt rétt á örorkustyrk. Skilyrði er að umsækjandi hafi verið búsettur á Íslandi a.m.k. þrjú síðustu árin áður en umsókn er lögð fram eða í sex mánuði ef starfsorka var óskert þegar hann tók hér búsetu. Einnig þarf að liggja fyrir mat tryggingalæknis um að umsækjandi hafi misst a.m.k. 50% af starfsorku sinni en nái ekki 75% starfsorkumissi.

Hvað er örorkustyrkur?

Örorkustyrkur er tekjutengdur bótaflokkur og getur hæstur verið u.þ.b. 3/4 af fullum örorkulífeyri fyrir fólk á aldrinum 18-61 árs. Örorkustyrkur er hins vegar jafnhár örorkulífeyri fyrir fólk á aldrinum 62-67 ára. Greiðslur eru reiknaðar út frá tekjum í tekjuáætlun sem þarf að fylgja með umsókn.

Engar viðbótargreiðslur eru með örorkustyrk nema til þeirra sem hafa börn innan 18 ára á framfæri sínu. Viðbótin er 75% af barnalífeyri fyrir hvert barn á framfæri umsækjanda.

Fullur örorkustyrkur er greiddur ef árstekjur örorkustyrkþegans eru undir 2.575.220 kr. og nemur þá ¾ af grunnlífeyri. Greiðslur lækka með hækkandi tekjum og falla niður við árstekjur 3.981.332 kr. 

Tekjur maka hafa ekki áhrif á greiðslur, nema fjármagnstekjur sem eru reiknaðar sameiginlega hjá sambúðarfólki/hjónum. Reiknað er með helmingi hjá hvoru um sig við útreikning bóta.

Hvenær fellur örorkustyrkur niður?   

  • ef árstekjur fara yfir 3.981.332 kr.
  • þegar endurnýjað mat er undir 50% eða nær 75% örorkumati
  • þegar einstaklingur verður 67 ára, því þá öðlast hann rétt til ellilífeyris og þarf að sækja sérstaklega um hann
  • ef endurnýjun á örorkumati berst of seint til Tryggingastofnunar fellur örorkustyrkur niður þar til nýtt örorkumat hefur verið afgreitt
  • ef búsetuskilyrði eru ekki uppfyllt
  • við andlát

 


 




Þetta vefsvæði byggir á Eplica