Tryggingastofnun
Þinn réttur

Endurreikningur og uppgjör bóta hjá Tryggingastofnun

Til að tryggja að lífeyrisþegar fá greitt út í samræmi við sinn rétt  fer árlega fram  endurreikningur og uppgjör á lífeyri og tengdum bótum hjá Tryggingastofnun ríkisins.

Þeir sem eru 67 ára og eldri og hafa búið á Íslandi í tilskilinn tíma geta átt rétt á ellilífeyri frá Tryggingastofnun. Rétt til örorkulífeyris eiga þeir sem eru á aldrinum 18 – 67 ára og hafa verið metnir 75% öryrkjar. Til að virkja mögulegan rétt þarf að skila umsókn til Tryggingastofnunar ásamt umbeðnum fylgigögnum. Réttur til lífeyris er auk þess háður lengd búsetu í landinu og tekjutengdur.

Til að tryggja að lífeyrisþegar fá greitt út í samræmi við sinn rétt  fer árlega fram  endurreikningur og uppgjör á lífeyri og tengdum bótum hjá Tryggingastofnun ríkisins. Við endurreikning eru greiðslur til lífeyrisþega bornar saman við tekjuáætlanir þeirra og skattframtal fyrir sama ár. Um er að ræða endurreikning grunnlífeyris, tekjutryggingar, heimilisuppbótar, aldurstengdrar örorkubótar, orlofs- og desemberuppbóta og vistunarframlags.

Hvað þýðir endurreikningur?

Hafi lífeyrisþegi fengið of lágar greiðslur á árinu, til dæmis vegna þess að í tekjuáætlun var gert ráð fyrir hærri tekjum en raun varð á, fær hann vangreiðsluna greidda út. Áður en til útborgunar á inneign kemur verða hugsanlegar eldri skuldir lífeyrisþega við Tryggingastofnun greiddar upp. Hafi lífeyrisþegi aftur á móti fengið greitt meira en rétturinn stóð til, vegna þess t.d. að árstekjur hans urðu hærri en gert var ráð fyrir eða misfarist að láta Tryggingastofnun vita um tekjubreytingar, er ofgreiðslan innheimt.

Hvenær er hægt að sjá niðurstöður uppgjörs?

Næstu daga fá lífeyrisþegar sent bréf með niðurstöðum uppgjörsins fyrir árið 2009. Í því bréfi eru jafnframt upplýsingar frá Ríkisskattstjóra um breytingar sem hafa orðið á tekjum innan ársins 2009. Niðurstöður hvers og eins verða einnig aðgengilegar á rafrænum þjónustusíðum Tryggingastofnunar, tryggur.is.  Frekari upplýsingar um uppgjörið er að finna að vef Tryggingastofnunar www.tr.is

Andmælaréttur

Ef lífeyrisþegar eru ósáttir við niðurstöðuna geta þeir andmælt henni og rökstutt með gögnum.  Andmælum er hægt að koma á framfæri rafrænt á tryggur.is eða á eyðublaðisem er á vef stofnunarinnar tr.is og á afgreiðslustöðum hennar.

Úrskurðarnefnd almannatrygginga

Rísi ágreiningur um grundvöll, skilyrði eða upphæð bóta er unnt að kæra ákvörðunina til Úrskurðarnefndar almannatrygginga.. Kærufrestur er þrír mánuðir.

Hvar er hægt að fá nánari upplýsingar?

Starfsfólk Þjónustumiðstöðvar og umboða veitir upplýsingar um rétt til töku lífeyris, endurreikning og uppgjör. Sími 560 4400, netfang á tr@tr.is.

Lög og reglugerðir til grundvallar endurreikningi:



Sett inn 27. júlí 2010


 



Þetta vefsvæði byggir á Eplica