Tryggingastofnun
Þinn réttur

Þinn réttur: Þegar sótt er um endurhæfingarlífeyri

Meginskilyrði fyrir veitingu endurhæfingarlífeyris er að umsækjandi taki þátt í endurhæfingu með starfshæfni að markmiði.

Hver eru meginskilyrði fyrir veitingu endurhæfingarlífeyris?

Meginskilyrði fyrir veitingu endurhæfingarlífeyris er að umsækjandi taki þátt í endurhæfingu með starfshæfni að markmiði. Tryggingastofnun metur hvort endurhæfingaráætlun telst fullnægjandi og hefur eftirlit með að henni sé framfylgt og önnur skilyrði uppfyllt. Athygli er vakin á að endurhæfingaráætlun skal vera unnin af lækni/meðferðaraðila eða ráðgjafa í samvinnu við umsækjanda. Eftirfylgni, stuðningur og eftirlit með framgangi endurhæfingar getur verið í höndum læknis/meðferðaraðila eða ráðgjafa sem jafnframt heldur utan um endurhæfinguna.

Hverjir geta sótt um?

Heimilt er að greiða einstaklingum á aldrinum 18-67 ára endurhæfingarlífeyri í allt að 18 mánuði þegar ekki er ljóst hver starfshæfni verður til frambúðar í kjölfar sjúkdóma eða slysa.

Ef sérstakar ástæður eru fyrir hendi er hægt að lengja greiðslutímabilið um aðra 18 mánuði.

Áður en til mats á endurhæfingarlífeyri kemur þarf umsækjandi að hafa lokið áunnum rétti sínum til veikindalauna frá atvinnurekanda, sjúkradagpeningum frá sjúkrasjóði stéttarfélags og eiga ekki rétt á atvinnuleysisbótum.

Hvernig er sótt um?

Á vef Tryggingastofnunar er umsóknareyðublað um endurhæfingarlífeyri/endurhæfingu. Um er að ræða eyðublað sem felur í sér nákvæma upplýsingaöflun m.a. um umsækjanda með tilliti til stöðu hans á vinnumarkaði.

Ennfremur er á vef Tryggingastofnunar eyðublað sem heitir Endurhæfingaráætlun, sem er ætlað fagaðilum. Í endurhæfingaráætlun þurfa að koma fram upplýsingar um langtíma- og, skammtímamarkmið endurhæfingar, ásamt greinargóðri lýsingu á innihaldi hennar. Mikilvægt er að starfshæfni sé alltaf höfð að leiðarljósi í endurhæfingu og endurhæfingaráætlun því byggð upp með áherslu á endurkomu á vinnumarkað.

Þess ber að geta að með umsókn um endurhæfingarlífeyri þarf alltaf að liggja fyrir endurhæfingaráætlun og læknisvottorð.


Þinn réttur

Í efnisflokknum „Þinn réttur” á vef Tryggingastofnunar er bent á ákveðin réttindi almannatrygginga hverju sinni. Þinn réttur getur verið margvíslegur í almannatryggingakerfinu en hann fer eftir aðstæðum þínum og hvort ákveðin skilyrði séu uppfyllt. Með því að draga fram sérstök ákvæði almannatryggingalaganna viljum við vera þeim lesendum innan handar sem vilja kynna sér hugsanlegan rétt sinn.

Þessi pistill birtist í Morgunblaðinu 19. maí 2010


 




Þetta vefsvæði byggir á Eplica