Þinn réttur: Framlenging lífeyrisgreiðslna
Ef elli- eða örorkulífeyrisþegi dvelst lengur en mánuð samfellt á stofnun eða vistheimili sem er á föstum fjárlögum eða þar sem sjúkratryggingar greiða fyrir hann fellur lífeyrir hans niður ef vistin hefur verið lengri en 6 mánuðir undanfarna 12 mánuði. Heimilt er að víkja frá þessum tímamörkum og greiða lífeyrisþega lífeyri í allt að sex mánuði til viðbótar í samræmi við þessar reglur.
Réttur til framlengingar þrátt fyrir sjúkrahúsvist er til staðar samkvæmt eftirfarandi skilmálum:
Ákvörðun um framlengingu greiðslna getur náð til allt að þriggja mánaða í senn. Ef óskað er frekari framlengingar skal sækja um það sérstaklega.
Lífeyrisþegi sem þegar hefur fengið framlengingu greiðslna í samtals sex mánuði á kost á að sækja um framlengingu að nýju að liðnu einu ári frá samþykkt síðustu framlengingar.
Framlenging er ekki veitt ef mánaðarleg greiðslubyrði umsækjanda er lægri en mánaðarlegar tekjur hans að frádreginni staðgreiðslu skatta og eftir að greiðslur frá Tryggingastofnun hafa fallið niður.
Ef heildartekjur umsækjanda eru hærri en sem nemur óskertum grunnlífeyri og tekjutryggingu einhleypings er framlenging ekki veitt. Sé umsækjandi í hjónabandi eða skráðri sambúð er heimilt að veita framlengingu ef sameiginlegar tekjur umsækjanda og maka hans eða sambúðaraðila eru ekki hærri en sem nemur tvöföldum grunnlífeyri og tekjutryggingu á mánuði.
Framlenging er ekki veitt ef umsækjandi eða maki/sambúðaraðili hans á eignir í peningum eða verðbréfum yfir þeim viðmiðunarmörkum sem notuð eru hverju sinni varðandi heimild til greiðslu uppbótar á lífeyri. Uppbætur eru ekki greiddar ef lífeyrisþegi á eignir í peningum eða verðbréfum yfir 4.000.000 kr., eða hefur heildartekjur, að meðtöldum greiðslum frá TR yfir 198.650 kr. á mánuði (2.383.800 kr. á ári)
Við afgreiðslu umsókna samkvæmt þessum reglum er heimilt að taka tillit til sérstakra aðstæðna umsækjanda og maka hans. Einkum er litið til þess hvort framlenging lífeyrisgreiðslna sé nauðsynleg vegna afborgana eða annars rekstrarkostnaðar húsnæðis.
Sótt er um hjá Tryggingastofnun á sérstöku eyðublaði „Umsókn um framlengingu bóta þrátt fyrir sjúkrahúsvist“. Með umsókn þurfa að fylgja upplýsingar um húsnæðiskostnað.
Tilvísanir í lög og reglugerðir:
1. Lög um almannatryggingar nr. 100/2007, lög um málefni aldraðra nr. 125/1999 og lög um sjúkratryggingar nr.112/2008: http://www.althingi.is
2. Reglugerð 1215/2008 og 1216/2008: http://www.reglugerd.is/
