Þinn réttur: Hverjir eiga mögulegan rétt á styrkjum og uppbótum vegna bifreiða?
Með líkamlegri hreyfihömlun er átt við sjúkdóm eða fötlun sem skerðir verulega færni til að komast ferða sinna þannig að göngugeta er að jafnaði minni en 400 metrar á jafnsléttu.
Þar er fyrst og fremst um að ræða:
- Lömun eða skertan hreyfanleika í ganglimum af völdum sjúkdóms eða fötlunar.
- Mæði vegna hjarta- eða lungnasjúkdóma.
- Annað sambærilegt.
Blindir geta átt rétt á uppbót vegna reksturs bifreiða og vegna kaupa á bifreið.
Helstu skilyrði til styrkveitinga eru eftirfarandi:
- Umsækjandi eða annar heimilismaður þarf að hafa ökuréttindi.
- Bifreiðin þarf að vera skráð á umsækjanda/framfæranda barns eða maka (má vera rekstrarleiga eða kaupleiga)
- Eingöngu er heimilt að greiða uppbót/styrk vegna fólksbifreiða og sendibifreiða sem eru til almennra nota. Hafa ber í huga hvort umsækjandi hafi þörf fyrir sendibifreið vegna fötlunar sinnar. Allar bifreiðar þurfa að vera til daglegra nota.
- Skilyrði er að Tryggingastofnun samþykki val á bifreið.
Heimilt er að greiða elli-, örorkulífeyrisþega og örorkustyrkþega uppbót vegna reksturs bifreiðar sem nú er 10.828 kr. á mánuði til að mæta kostnaði við rekstur bifreiðar ef bótaþega er nauðsyn að hafa bifreið vegna hreyfihömlunar og sýnt er að hann geti ekki komist af án uppbótarinnar.
Uppbót vegna kaupa á bifreið er í dag 300.000 kr. en fyrir þá sem eru að kaupa bifreið í fyrsta sinn er fjárhæðin 600.000 kr. Heimilt er að greiða örorkulífeyrisþega, örorkustyrkþega og ellilífeyrisþega uppbót vegna kaupa á bifreið sem bótaþega er nauðsyn að hafa vegna hreyfihömlunar. Ennfremur er heimilt að veita uppbót til kaupa á bifreið til framfæranda hreyfihamlaðs barns sem nýtur umönnunargreiðslna.
Styrk að fjárhæð 1.200.000 kr. er heimilt að veita til að kaupa bifreið sem nauðsynleg er vegna þess að líkamsstarfsemi er hömluð eða vantar líkamshluta.
Skilyrði styrks eru:
- Umsækjandi þarf að vera hreyfihamlaður og vera t.d. bundinn hjólastól og/eða notar tvær hækjur að staðaldri.
- Umsækjandi þarf að vera sjúkratryggður hér á landi.
Styrk til kaupa á sérútbúnum bifreiðum, getur verið allt að 50-60 % af kaupverði bifreiðar, þ.e. grunnverði án aukabúnaðar ef um er að ræða einstakling sem ekki kemst af án sérútbúinnar og dýrrar bifreiðar vegna mikillar fötlunar. Hámarks fjárhæð styrks er 5.000.000 kr.
Áður en uppbót/styrkur er greiddur skal leggja fram upplýsingar um kaupverð bifreiðar, sem má ekki vera lægra en fjárhæð uppbótar eða styrkjar. Hægt er að sækja um uppbót og styrki á 5 ára fresti og er óheimilt að selja bifreiðina á því tímabili nema með leyfi Tryggingastofnunar.
Tilvísanir í lög og reglugerðir
- Lög nr. 99/2007 um félagsleg aðstoð ásamt síðari breytingum
- Reglugerð nr. 170/2009 um styrki og uppbætur til hreyfihamlaðra einstaklinga vegna bifreiða
- Lög nr. 39/1988 um bifreiðagjöld ásamt síðari breytingum
- Reglugerð nr. 331/2000 um vörugjald ásamt síðari breytingum
- Lög nr. 112/2008 um sjúklingatryggingu
- Lög um almannatryggingar nr. 100/2007
