Tryggingastofnun
Þinn réttur

Þinn réttur: Maka- og umönnunarbætur

Maka-og umönnunarbætur eru greiðslur sem er heimilt, að uppfylltum ákveðnum skilyrðum, að greiða maka eða öðrum sem halda heimili með lífeyrisþega sem þarfnast umönnunar í heimahúsi.

Til þess að eiga rétt á þessum greiðslum er skilyrði að vera ekki lífeyrisþegi og að eiga sama lögheimili og sá sem þarfnast umönnunar. Með umsókn þarf að fylgja læknisvottorð sem tilgreinir umönnunarþörf lífeyrisþegans. Jafnframt skal leggja fram staðfestingu frá vinnuveitanda um að starf hafi verið lagt niður eða umsækjandi hafi lækkað starfshlutfall sitt. Staðfesting frá skattayfirvöldum um lækkun eða stöðvun á reiknuðu endurgjaldi þarf að fylgja, ef umsækjandi er með sjálfstæðan rekstur. Ef um tekjuleysi er að ræða, t.d. þegar lífeyrisþeginn hefur verið eina fyrirvinnan og umönnunaraðilinn er maki sem er ekki lífeyrisþegi, þarf staðfesting þar um að fylgja umsókn. Sama á við um foreldri sem ekki hefur verið á vinnumarkaði en hefur haft framfærslu frá sveitarfélagi. Ef öll skilyrði eru uppfyllt skapast réttur til greiðslna frá fyrsta degi þess mánaðar sem sótt er um. Maka- og umönnunarbætur má að jafnaði ekki greiða afturvirkt en við sérstakar aðstæður er hægt að meta réttindi sex mánuði aftur í tímann.

Maka- og umönnunarbætur eru úrskurðaðar í sex mánuði í senn. Þegar umsókn er endurnýjuð þarf aftur að leggja fram gögn sem staðfesta tekjulækkun eða tekjuleysi og læknisvottorð. Hægt er að gera undantekningu á læknisvottorði við endurnýjun umsóknar þegar fyrir liggja upplýsingar um fötlun eða ólæknandi sjúkdóma.

Þess ber að geta að maka- og umönnunarbætur eru 80% af lífeyri og tekjutryggingu og eru nú 98.482 kr. á mánuði og eru staðgreiðsluskyldar. Heimilt er að greiða þessar bætur í allt að tvo mánuði til viðbótar ef lífeyrisgreiðslur falla niður vegna sjúkrahúsvistar.



 



Þetta vefsvæði byggir á Eplica