Þinn réttur: Aðgengi upplýsinga á vef Tryggingastofnunar www.tr.is
Hlutverk Tryggingastofnunar sem einnar af undirstöðum íslensks velferðarkerfis er að annast stjórnsýslu almannatrygginga og þar með að upplýsa viðskiptavini stofnunarinnar um réttindi sín. Þeir sem þekkja réttindi sín eru betur í stakk búnir til að hagnýta sér þau og standa vörð um þau. Aukinn skilningur á ólíkum þörfum fólks sem vill tileinka sér nýja þekkingu og nýja miðlunartækni hafa að undanförnu opnað nýjar víddir í möguleikum til samskipta sem m.a. ættu að koma viðskiptavinum Tryggingastofnunar til góða.
Stefnt er að því að vefurinn www.tr.is standist 3. stigs aðgengisvottun hjá Sjá og er táknmálsviðmótið liður í því. Á döfinni er einnig að hafa valdar síður einnig á auðlesnu formi. Sjá ehf hefur í samvinnu við Öryrkjabandalagið skilgeint þær kröfur sem liggja að baki vottuninni. Til hliðsjónar er hafður alþjóðlegur staðall fyrir aðgengi á Veraldarvefnum, Web Accessability Initiative (WAI).
Á www.tr.is er nú að finna hjálpartæki til að bæta aðgengi mismunandi hópa að upplýsingum sem þegar eru á vefnum. Þannig er hægt að breyta stærð, útliti og lit leturs og bakgrunns eftir eigin höfði og allt efni á vefnum er hægt að lesa með skjálesurum fyrir sjónskerta og fólk með leserfiðleika.
Á vefnum er einnig hægt að fá upplýsingar um suma málaflokka með táknmálsviðmóti. Það er í samræmi við aðgengisstefnu Tryggingastofnunar að taka tillit til mismunandi sérþarfa hópa við framsetningu upplýsinga á vefnum.
Það sem fært hefur verið yfir á táknmálsviðmót eru inngangsupplýsingar um slysatryggingar, réttindi og þjónustuþætti er snúa að foreldrum og börnum, upplýsingar um örorku og ellilífeyri, upplýsingar um eyðublöð, upplýsingar um þjónustuleiðir Tryggingastofnunar og hvar hægt er að koma ábendingum á framfæri við Tryggingastofnun.
Á www.tr.is er að finna grunnupplýsingar á ensku um almannatryggingar, Tryggingastofnun og starfsemi umboða um land allt. Mikil þörf hefur verið fyrir þennan þátt. Þess ber að geta að enski textinn er einnig hafður á íslensku fyrir þá sem eru að leiðbeina vinum og ættingjum.
Áfram veginn, sem er upplýsingarrit fyrir eldri borgara hefur einnig verið lesinn inn á hljóðskrá sem er hægt að hlaða niður af heimilistölvum eða panta hjá Tryggingastofnun og fá senda heim á geisladiski til að hlusta á.
Hjá Tryggingastofnun er markvisst unnið að því að virkja fjölbreytta möguleika til miðlunar á vefnum, til að veita viðskiptavinum stofnunarinnar sem besta þjónustu.
