Tryggingastofnun
Þinn réttur

Þinn réttur: Vistun á dvalar- og hjúkrunarheimilum

Þátttaka vistmanna í dvalarkostnaði er tekjutengd og því misjanlega há eftir tekjum hvers vistmanns. Ef mánaðartekjur vistmanns eru að jafnaði 65.005 kr. eða meira eftir skatta (greiðslur frá Tryggingstofnun ekki meðtaldar) þá tekur hann þátt í dvalarkostnaði með þeim tekjum sem eru umfram það. Greiðsluþátttaka vistmanna verður þó aldrei hærri en 262.313 kr. á mánuði. Greiðsluþátttakan hefst fyrsta dag næsta mánaðar eftir að vistunarmat tekur gildi.

Hvað er vistunarmat?

Vistunarmat er faglegt einstaklingsbundið mat á þörfum einstaklinga fyrir varanlega vistun á dvalar- eða hjúkrunarheimili. Þegar að því kemur að sækja um vist á dvalar- eða hjúkrunarheimili þarf fyrst að sækja um vistunarmat til vistunarmatsnefnda í viðkomandi landshluta. Daggjöld til heimila eru ekki greidd nema vistunarmat liggi fyrir.

Hvernig er greiðslum háttað?

Við flutning á dvalar- eða hjúkrunarheimili falla lífeyrisgreiðslur Tryggingastofnunar til vistmannsins niður frá fyrsta degi næsta mánaðar. Einstaklingar með engar eða lágar tekjur geta átt rétt á vasapeningum. Fullir vasapeningar eru 41.895 kr. á mánuði. Vasapeningar eru tekjutengdir, lækka því með hækkandi tekjum og falla niður ef tekjur eru yfir 64.454 kr. á mánuði.

  • Ef um dvalarheimili er að ræða þá greiðir Tryggingastofnun vistunarframlag til heimilisins og heimilið innheimtir hjá vistmanni hans hlut í vistgjaldinu ef hann á að taka þátt í því.
  • Ef um hjúkrunarheimili er að ræða þá greiðir Tryggingastofnun fullt daggjald til heimilisins. Ef vistmaður á að taka þátt í dvalarkostnaði þá innheimtir heimilið hans hlut og endurgreiðir hann til Tryggingastofnunar.

Upphæðir gilda fyrir árið 2009.

Nánari upplýsingar:


 



Þetta vefsvæði byggir á Eplica