Þinn réttur: Barnalífeyrir vegna náms eða starfsþjálfunar og framlag vegna menntunar ungmenna
Barnalífeyrir vegna náms eða starfsþjálfunar
Hver eru skilyrði fyrir greiðslu?
Skilyrði er að ungmenni sé í fullu námi í viðurkenndum framhaldsskóla og að námið sé hans aðalstarf. Fullt nám er um 17 einingar á önn en heimilt er að víkja frá þessu skilyrði ef um er að ræða hægfara nám eða sérstaka erfiðleika nemandans. Nám þarf að taka a.m.k. sex mánuði ár hvert. Ef um er að ræða óreglulegt nám eða námskeið sem jafngildir viðurkenndu námi er námstíminn reiknaður í kennslustundafjölda á almanaksárinu og telst þá sex mánaða nám samsvara 624 kennslustundum. Brot úr mánuði telst heill mánuður. Hægt er að fresta afgreiðslu menntunarbarnalífeyris þar til sex mánaða námstíma er náð.
Ef nemandi er einnig í launuðu starfi eða launuðu iðnnámi fellur heimild til þessara greiðslna niður þegar mánaðartekjur eru hærri en sem nemur sjöföldum barnalífeyri. Ef ekki er um iðnnám að ræða þarf að færa sönnun á að launað starf sé unnið að jafnaði utan hefðbundins skólatíma. Menntunarbarnalífeyrir er aðeins greiddur ef umsækjandi á lögheimili á Íslandi. (ekki greiddur til Norðurlandanna).
Hvernig er sótt um barnalífeyri vegna náms eða starfsþjálfunar?
Ungmenni sækir sjálft um á eftirfarandi eyðublöðum sem nálgast má hér, í þjónustumiðstöð Tryggingastofnunar, Laugavegi 114, eða umboðum hennar um land allt.
Hvaða gögnum þarf að skila inn?
- Staðfesting á skólavist. Upplýsingar um einingafjölda náms þarf að koma fram nema ef um bekkjarkerfi sé að ræða þá þarf aðeins staðfestingu á skólavist.
- Með umsókn þarf einnig staðfest ljósrit af skattframtali. Ef um háar tekjur er að ræða þarf að senda staðfestingu atvinnurekanda um vinnutilhögun.
- Þegar komið er með vottorð um skólavist v/framlengingar þarf ekki að skila inn nýrri umsókn heldur er nóg að senda staðfest gögn frá skóla um námsframvindu síðustu annar og skólavist á komandi önn. Einnig þarf að skila skattframtali á haustönnum v/framlengingar. Hægt er að senda skattframtal rafrænt frá rsk.
- Hafi sýslumaður hafnað úrskurði um meðlag vegna efnaleysis eða ef ekki hefur tekist að hafa upp á foreldri er sá úrskurður einnig sendur með umsókn.
- Hægt er að sækja um undanþágu frá fullu námi ef nemandi getur ekki stundað fullt nám. Staðfesting frá námsráðgjafa þarf að fylgja með.
- Leggja þarf fram dánarvottorð ef sótt er um vegna andláts foreldris og hinn látni hefur ekki verið búsettur hér á landi og gögn ekki verið lögð fram áður t.d. vegna barnalífeyris til foreldris fram að 18 ára aldri barns.
Barnalífeyrir vegna náms eða starfsþjálfunar fellur niður:
- þegar viðkomandi uppfyllir ekki lengur skilyrði um skólagöngu.
- ef ungmennið verður örorkulífeyrisþegi.
- ef ungmennið flytur úr landi.
- ef foreldri er ekki lengur lífeyrisþegi.
- ef tekjur eru yfir viðmiðunarmörkum.
Framlag vegna menntunar ungmenna
Hvað er framlag vegna mennunar ungmenna og hver eru skilyrði?
Samkvæmt barnalögum er hægt að úrskurða meðlagsskylt foreldri til að inna af hendi framlag vegna menntunar til ungmenna á aldrinum 18 til 20 ára. Sýslumenn um land allt staðfesta samning eða úrskurða um slíkt framlag. Eftir að úrskurður/samningur hefur verið gefinn út getur ungmennið sótt um að Tryggingastofnun hafi milligöngu um þessar greiðslur. Framlag vegna menntunar ungmenna er kr. 19.760.
Hvernig er sótt um framlagið?
Ungmenni sækir sjálft um á eyðublöðum sem nálgast má hér, í þjónustumiðstöð Tryggingastofnunar Laugavegi 114, eða umboðum hennar um land allt.
Frumrit úrskurðar/samnings þarf að fylgja með umsókn.