Tryggingastofnun
Þinn réttur

Þinn réttur: Námsmenn erlendis

Námsmenn sem dvelja erlendis við nám njóta ýmissa réttinda almannatrygginga. Almennt gildir sú regla að sá sem er búsettur og tryggður hér á landi er áfram tryggður meðan á námi í öðru landi stendur. Taki námsmaður eða maki námsmanns upp fasta búsetu eða launavinnu í námslandinu ber honum að tilkynna slíkt til Þjóðskrár og fellur hann þá ekki lengur undir íslenska tryggingavernd. Unnt er að tryggja maka og börn með námsmanni.

Nám í EES löndum og Sviss

Námsmenn í Sviss eða öðrum löndum Evrópska efnahagssvæðisins (EES) geta haldið lögheimili sínu hér á landi meðan á námi stendur og haldið rétti sínum til almannatrygginga. Aðstoð er veitt samkvæmt reglum dvalarlandsins og því getur þjónustan sem veitt er verið ólík frá einu landi til annars og mismunandi gjöld innheimt fyrir hana. Til að tryggja sér rétt til aðstoðar ef þörf krefur hjá heilbrigðiskerfi hins opinbera í EES landi þarf að framvísa evrópska sjúkratryggingakortinu. Korthafi greiðir sama gjald fyrir þjónustuna og þeir sem eru tryggðir í viðkomandi landi.

Nám á Norðurlöndum

Þeir sem fara í nám til Norðurlandanna eiga að taka upp búsetu þar og falla því undir almannatryggingareglur viðkomandi lands. Aðstoð er veitt skv. reglum í viðkomandi landi og getur þjónusta og kostnaður verið ólík milli landa. Við komu til Íslands í fríum er hægt að sækja um tímabundið sjúkratryggingaskírteini vegna læknisþjónustu hérlendis.

Nám utan EES landa og Sviss

Námsmenn sem stunda nám í löndum utan EES og Sviss og fjölskyldur þeirra geta haldið lögheimili sínu hér á landi meðan á námi stendur og haldið rétti sínum til almannatrygginga. Unnt er að fá útgefna tryggingaryfirlýsingu um sjúkratryggingar hér á landi hjá Tryggingastofnun. Athugið að yfirlýsingin er eingöngu staðfesting á tryggingu en veitir ekki bein réttindi til þjónustu í dvalarlandinu. Tryggingastofnun endurgreiðir sjúkrakostnað sem námsmaður þarf að bera að því marki sem hlutur almannatrygginga hefði orðið í sams konar tilviki hér á landi. Eingöngu er greiddur kostnaður vegna heilbrigðisþjónustu sem telst nauðsynleg á meðan náminu stendur. Þar sem eingöngu er um staðfestingu á sjúkratryggingu að ræða ber námsmaður ábyrgð á þeim sjúkrakostnaði sem til verður vegna veikinda eða slyss. Sótt er um endurgreiðslu hjá Tryggingastofnun gegn framvísun frumrita af sundurliðuðum reikningum þar sem fram kemur hvaða þjónusta var veitt auk staðfestingar á greiðslu.

Þarf að kaupa sérstaka tryggingu ?

Evrópska sjúkratryggingakortið og almenna tryggingayfirlýsingin staðfesta eingöngu að námsmaður sé sjúkratryggður samkvæmt íslenskum lögum á meðan dvalið er við nám erlendis. Því getur verið nauðsynlegt að kaupa sér tryggingar hjá tryggingafélögum. Slíkar tryggingar greiða oft mun fleiri tegundir sjúkrakostnaðar en almannatryggingakerfið, t.d. heimflutninga vegna sjúkdóma eða andláts. 

Vinsamlega athugið:

  • Með námsmanni er átt við einstakling, annan en launþega eða sjálfstætt starfandi einstakling sem er við nám eða starfsþjálfun sem lýkur með viðurkenndri gráðu.
  • Hægt er að sjá lista yfir EES-lönd á vefnum www.tr.is, undir „Réttindi hér á landi og erlendis“.
  • Hægt er að sækja rafrænt um evrópska sjúkratryggingakortið á vef Tryggingastofnunar. Það er sent á lögheimili umsækjanda og berst eftir örfáa daga.

Þinn réttur

Í efnisflokknum „Þinn réttur” á vef Tryggingastofnunar er bent á ákveðin réttindi almannatrygginga hverju sinni. Þinn réttur getur verið margvíslegur í almannatryggingakerfinu en hann fer eftir aðstæðum þínum og hvort ákveðin skilyrði séu uppfyllt. Með því að draga fram sérstök ákvæði almannatryggingalaganna viljum við vera þeim lesendum innan handar sem vilja kynna sér hugsanlegan rétt sinn.


 



Þetta vefsvæði byggir á Eplica