Tryggingastofnun
Þinn réttur

Þinn réttur: Endurgreiðsla vegna mikils kostnaðar


Athugið að þann 4. maí 2013 tók gildi ný reglugerð um endurgreiðslu vegna mikilis kostnaðar vegna læknishjálpar, lyfja, sjúkra-, iðju og talþjálfunar.  Lesa má nánar um þær breytingar hér
Greinargóðar upplýsingar um nýtt greiðsluþátttökukerfi vegna kaupa á lyfjum eru á vef Sjúkratrygginga Íslands


Þeir sem hafa orðið fyrir miklum útgjöldum vegna læknishjálpar, lyfja, sjúkra-, iðju- og talþjálfunar geta átt rétt á endurgreiðslu kostnaðar að hluta hjá Tryggingastofnun. Endurgreiðslan miðast við tekjur fjölskyldu eða einstaklinga og er greidd út fjórum sinnum á ári. Endurgreiðslan á við um alla sjúkratryggða einstaklinga og einskorðast ekki við örorku- og ellilífeyrisþega.

Hvernig er endurgreiðslan metin?

Við mat á endurgreiðslu er tekið tillit til heildarútgjalda vegna læknishjálpar, lyfja og þjálfunar, auk tekna fjölskyldu. Tekjur fjölskyldu og samanlagður læknis-, lyfja- og þjálfunarkostnaður miðast við hjón eða sambýlisfólk og börn þeirra undir 18 ára aldri.

Einstaklingur eða fjölskylda greiðir grunnkostnað sem miðast við 0,7% af tekjum en fær endurgreitt hlutfall af útgjöldum umfram grunnkostnaðinn. Endurgreiðsluhlutfallið lækkar með hækkandi tekjum. Þegar árstekjur hafa náð kr 3.750.000 er ekki lengur um endurgreiðslu að ræða (fyrir hvert barn í fjölskyldu miðast við að dregið sé frá kr. 260.000 af árstekjum fjölskyldu). Tekjur miðast við árstekjur árið áður en til kostnaðar er stofnað. Heimilt er að víkja frá þeirri reglu ef tekjur lækka verulega, s.s. vegna alvarlegra veikinda eða atvinnumissis.

Lágmarks endurgreiðsla er 1.000 krónur og hægt er að fá endurgreitt allt að tvö ár aftur í tímann.

Endurgreitt er fyrir þrjá mánuði í senn:

  • 1. janúar - 31. mars
  • 1. apríl - 30. júní
  • 1. júlí - 30. september
  • 1. október - 31. desember

Hvernig sæki ég um endurgreiðslu?

Umsókn um endurgreiðslu skal skilað til þjónustumiðstöðvar Tryggingastofnunar ríkisins eða umboða hennar um land allt. Umsóknareyðublaðið er að finna á vefnum tr.is, það heitir „Umsókn um endurgreiðslu kostnaðar vegna læknishjálpar, lyfja og þjálfunar”.

Með umsókn þurfa að fylgja kvittanir vegna útgjalda fyrir læknishjálp, lyf eða þjálfun. Kvittanir þurfa að bera með sér nafn útgefanda, tegund þjónustu, greiðsluhluta sjúklings, greiðsludag, nafn og kennitölu viðkomandi. Varðandi staðfestingu lyfjakostnaðar þarf að láta fylgja með útskriftir úr apótekum, sem sýna lyfjakaup viðkomandi.

Hvenær er ekki endurgreitt?

Tryggingastofnun má ekki endurgreiða þennan kostnað ef viðkomandi læknir eða meðferðaraðili hefur ekki samning við heilbrigðisráðherra. Ekki er endurgreitt vegna tannlæknaþjónustu eða fyrir flutning með sjúkrabíl.

Önnur atriði

Heimilt er að draga frá heildarútgjöldum uppbót sem elli- og örorkulífeyrisþegi nýtur vegna lyfja og/-eða þjálfunarkostnaðar. Kostnaður vegna lyfja sem Tryggingastofnun tekur ekki þátt í að greiða er ekki endurgreiddur nema vegna lyfja fyrir börn yngri en 18 ára. Endurgreiðsla vegna mikils lyfjakostnaðar fer eftir viðmiðunarverði, sem þýðir að ef dýrara lyf er valið greiðir sjúklingur sjálfur mismuninn og er hann ekki endurgreiddur.

Þinn réttur

Í efnisflokknum „Þinn réttur” á vef Tryggingastofnunar er bent á ákveðin réttindi almannatrygginga hverju sinni. Þinn réttur getur verið margvíslegur í almannatryggingakerfinu en hann fer eftir aðstæðum þínum og hvort ákveðin skilyrði séu uppfyllt. Með því að draga fram sérstök ákvæði almannatryggingalaganna viljum við vera þeim lesendum innan handar sem vilja kynna sér hugsanlegan rétt sinn.


 




Þetta vefsvæði byggir á Eplica