Græna umslagið
Birtist í Morgunblaðinu 23. janúar 2012
Í dag birtist pistill í Morgunblaðinu í pistlaröðinni Þinn réttur. Að þessu sinni var fjallað um græna umslagið sem er að berast til lífeyrisþega þessa dagana.
Græna umslagið er sent til lífeyrisþega Tryggingastofnunar um hver áramót. Í græna umslaginu er áætlun fyrir árið 2012 sem sýnir lífeyrisgreiðslur sundurliðaðar eftir greiðslutegundum og mánuðum ásamt tillögu að tekjuáætlun fyrir árið 2012 og kröfuyfirliti ef við á.
Hvað á að gera við græna umslagið?
Lífeyrisþegar eru hvattir til að geyma greiðsluáætlunina fyrir árið þar sem mánaðarlegir greiðsluseðlar eru ekki sendir út. Tillögu að tekjuáætlun er mikilvægt að skoða og leiðrétta ef hún er ekki rétt. Skjölin í græna umslaginu eru einnig aðgengileg á www.tr.is , Mínum síðum.
Til að fara á Mínar síður þarf að slá inn kennitölu og veflykil ríkisskattstjóra. Ef veflykil vantar er sótt um hann á www.skattur.is. Hægt er að fá hann sendan í heimabanka eða heim með pósti. Einnig er hægt að nota rafræn skilríki á debetkortum frá bönkunum.
Hvað er nauðsynlegt að hafa í huga?
Ef breytingar verða á högum lífeyrisþega eða tekjur breytast á árinu þarf að leiðrétta tekjuáætlun 2012 til þess að greiðslur verði réttar. Hægt er að gera það á tr.is, Mínum síðum eða skila henni undirritaðri til Tryggingastofnunar eða umboða um land allt. Ef forsendur breytast verður send ný greiðsluáætlun. Þeir sem nýta sér Mínar síður til að breyta og skila tekjuáætlun, geta strax fengið bráðabirgðaútreikning sem sýnir niðurstöður miðað við breyttar forsendur.
Einnig er hægt að nálgast eyðublaðið á vef Tryggingastofnunar: Tekjuáætlun 2012, breyting á tekjum/aðstæðum. Eyðublaðið þarf að prenta út, undirrita og koma til Tryggingastofnunar eða umboða.
Er hægt að fá aðstoð ef einhverjar spurningar vakna?
Hjá Tryggingastofnun eru margar þjónustuleiðir í boði sem geta jafnframt sparað sporin:
- Mínar síður eru aðgengilegar á tr.is. Við innskráningu þarf kennitölu og veflykil ríkisskattstjóra eða rafræn skilríki á debetkortum frá bönkum.
- Á vef Tryggingastofnunar tr.is eru ítarlegar upplýsingar um hvaðeina sem snertir almannatryggingar.
- Hægt er að senda tölvupóst á netfangið tr@tr.is, eða eiga netsamtal við þjónusturáðgjafa (opið frá 12.30-15.30) í gegnum hnapp á forsíðu tr.is.
- Sími Tryggingastofnunar er: 560 4400 – Símaþjónusta 560 4460 – Gjaldfrjálst númer: 800 6044
- Þjónustumiðstöð Laugavegi 114
- Umboðsmenn Tryggingastofnunar um land allt.
