Þinn réttur - Heimilisuppbót
Birtist í Morgunblaðinu 9. nóvember 2011
Í dag birtist pistill í Morgunblaðinu í pistlaröðinni Þinn réttur. Að þessu sinni var fjallað um heimilisuppbót.
Elli-, örorku- og endurhæfingarlífeyrisþegar geta sótt um heimilisuppbót hjá Tryggingastofnun að ákveðnum skilyrðum uppfylltum. Þeir þurfa að eiga lögheimili á Íslandi, vera einhleypir, einir um heimilisrekstur og fá greidda tekjutryggingu.
Lífeyrisþegar með börn undir 18 ára aldri teljast vera einir um heimilisrekstur og einnig lífeyrisþegar sem eiga maka á sjúkra- og langlegustofnunum. Einnig er heimilt að greiða heimilisuppbót ef börn lífeyrisþega, eru á aldrinum 18 til 20 ára, búa heima og stunda nám ef áðurnefnd skilyrði eru uppfyllt.
Hvernig er sótt um heimilisuppbót?
Sótt er um heimilisuppbót í þjónustumiðstöð Tryggingastofnunar að Laugavegi 114, Reykjavík eða hjá umboðum Tryggingastofnunar um land allt. Eyðublöð eru á vefnum www.tr.is eða á þjónustustöðum.
Ellilífeyrisþegar sækja um á eyðublaðinu, Umsókn um ellilífeyri og tengdar greiðslur, örorkulífeyrisþegar á eyðublaðinu, Umsókn um örorkulífeyri og tengdar bætur og endurhæfingarlífeyrisþegar á eyðublaðinu, Umsókn um endurhæfingarlífeyri/endurhæfingu.
Fylgigögn með umsókn:
- Ef umsækjandi býr einn í leiguhúsnæði þarf að skila inn húsaleigusamningi.
- Ef umsækjandi á börn á aldrinum 18 til 20 ára, sem búa heima og stunda nám, þarf að skila inn skólavottorði sem staðfestir skólavist.
Er heimilisuppbót tekjutengd?
Greiðslur Tryggingastofnunar eru tekjutengdar, þar með talin heimilisuppbót. Lífeyrisþegi þarf að vera með einhverja tekjutryggingu til þess að fá heimilisuppbót.
Hvenær þarf að endurnýja umsókn um heimilisuppbót?
Sækja þarf um heimilisuppbót aftur með því að skila útfylltri umsókn ef:
- Umsækjandi flytur í annað húsnæði. Hjá þeim sem eru í leiguhúsnæði þarf húsaleigusamningur að fylgja með.
- Þegar tímabundinn leigusamningur rennur út, þarf að framvísa nýjum samningi. Húsaleigukvittanir teljast ófullnægjandi gögn vegna heimilisuppbótar og koma ekki í stað leigusamnings. Þess ber að geta að leigusamningur þarf ekki að vera þinglýstur.
- Heimilisuppbót stöðvast við flutning úr landi og vegna sjúkrahúsvistar.
Hvað annað er gott að hafa í huga?
Heimilisuppbót eins og aðrar greiðslur almannatrygginga er greidd frá 1. næsta mánaðar eftir að umsókn berst.
