Tryggingastofnun
Þinn réttur

Þinn réttur - Tímabundin ókeypis tannlæknaþjónusta fyrir börn

Birtist í Morgunblaðinu 11. maí 2011

Í dag birtist pistill í Morgunblaðinu í pistlaröðinni Þinn réttur. Að þessu sinni var fjallað um tímabundna ókeypis tannlæknaþjónustu fyrir börn frá tekjulágum heimilum. 

Fyrir skömmu samþykkti ríkisstjórnin að veita tímabundið ókeypis tannlæknaþjónustu fyrir börn tekjulágra foreldra/forráðamanna. Tryggingastofnun mun taka á móti umsóknum og vinna þær, en tannlæknar á tannlæknadeild Háskóla Íslands meta hvað teljast nauðsynlegar tannlækningar og þar er þjónustan veitt.

Fyrir hverja?

Þjónustan er veitt fyrir sjúkratryggð börn tekjulágra foreldra á Íslandi. Miðað er við sérstök tekjuviðmið foreldra/forráðamanna sbr. reglugerð 408/2011.  Hægt er í undartekningartilvikum að víkja frá tekjuviðmiðum þegar um er að ræða alvarlegan félagslegan vanda í fjölskyldum. Þjónustan er fyrir börn alls staðar að af landinu og er hægt að sækja um endurgreiðslu vegna ferðakostnaðar.

Hvernig er sótt um?

  •  „Umsóknareyðublað um tannlæknaþjónustu fyrir börn“, er á www.tr.is og www.tr.is/tannverndbarna
  • Umsóknum er skilað til Tryggingastofnunar, Laugavegi 114 og umboða hennar um land allt.
  • Enn fremur má skila inn skönnuðum afritum af undirrituðum umsóknum á netfangið tannverndbarna@tr.is

Hvenær er þjónustan veitt?

  • Umsóknarfrestur er til 1. júní 2011.
  • Þjónustan er veitt á tímabilinu 1. maí til  26. ágúst

Fleiri gagnlegar upplýsingar?

Hjá Fjölmenningarsetri, www.mcc.is, verða upplýsingar á eftirtöldum tungumálum: Enska, pólska, serbneska/króatíska, taílenska, spænska, litháíska og rússneska. Þar er einnig hægt að fá upplýsingar og aðstoð við umsóknir og tímapantanir. Foreldrar sem á þurfa að halda, eru hvattir til að leita aðstoðar hjá starfsmönnum leikskóla, grunnskóla og félagsþjónustu sveitarfélaganna við að sækja um aðstoð fyrir börn sín.

Nánari upplýsingar eru veittar hjá Tryggingastofnun í síma: 5604400, gjaldfrjálst númer: 8006044, hjá umboðum sýslumanna um land allt og á vef Tryggingastofnunar www.tr.is

Samkvæmt lögum um félagslega aðstoð 99/2007 og reglugerð nr. 408/20


 




Þetta vefsvæði byggir á Eplica