Tryggingastofnun
Listin að lifa

Listin að lifa: Breytingar á almannatryggingum og endurreikningur vegna ársins 2007

Maí 2008

Hærra frítekjumark vegna atvinnutekna lífeyrisþega og endurreikningur greiðslna samhliða skattaálagningu eru þær breytingar sem hæst ber varðandi lífeyrisréttindi almannatrygginga í sumar. 

Frítekjumark vegna atvinnutekna ellilífeyrisþega 67-70 ára hækkar 1. júlí nk. úr 27.250 kr. upp í 100.000 á mánuði. Launatenging 70 ára og eldri hefur þegar verið afnumin. Tilgangurinn með þessari breytingu er að gera ellilífeyrisþegum enn frekar kleift að afla atvinnutekna án þess að þær tekjur hafi áhrif á ellilífeyri.

Einnig hefur verið sett sérstakt 90.000 kr. frítekjumark á fjármagnstekjur en stór hluti ofgreiðslna sem myndast hjá greiðsluþegum kemur til vegna fjármagnstekna. Í vændum er síðan afnám skerðingar vegna innlausnar séreignarsparnaðar en gert er ráð fyrir að það taki gildi 1. janúar 2009.

Þessar breytingar eru m.a. liður í sérstökum aðgerðum ríkisstjórnarinnar til að draga úr van- og ofgreiðslum tekjutengdra greiðslna.

Endurreikningur greiðslna 2007 samhliða skattaálagningu

 Nú fer að líða að uppgjöri vegna ársins 2007 og er fyrirkomulagið með breyttu sniði frá því 2006. Breytingin felst m.a. í því að nú er endurreiknað áður en skattaálagning ársins 2007 á sér stað en hingað til hefur Tryggingastofnuð reiknað eftir að skattaári er lokað.

Helsti kosturinn við að endurreikningur og skattaálagning gerist samtímis er sá að leiðrétting á greiðslum TR á sér stað innan sama árs og greiðslur tilheyra. Þegar greiðslur eru endurreiknaðar þá er ætíð miðað við heildargreiðslur fyrir skatt. Ef of-eða vangreiðsla kemur í ljós við endurreikning þá er um að ræða mismun á greiðslum fyrir skatt og þeim réttindum sem greiðsluþegi átti rétt á að teknu tilliti til skatta. Með breyttu fyrirkomulagi þá er notuð sama skattaprósenta og greiðsluþegi fékk greitt eftir og því myndast ekki misræmi sem kemur til leiðréttingar síðar hjá skattayfirvöldum. Með öðrum orðum þá kemur staðgreiðsla ársins 2007 til lækkunar á kröfu sem myndast á árinu 2007.

Stefnt er að því að í lok júlí fái greiðsluþegar upplýsingabréf varðandi endurreikninginn. Vert er að benda á þann möguleika að hægt er að dreifa greiðslum sem stafa af fjármagnstekjum og/eða séreignasparnaði. Frá og með 1. jan 2007 var heimilt að dreifa þessum tekjum á allt að 10 ár en skilyrði fyrir dreifingu er að tekjurnar hafi verið leystar út í einu lagi. Búast má við að margir nýti sér þennan valkost.

Mikilvægi tekjuáætlunar

Tekjuáætlanir lífeyrisþega eru þau gögn sem starfasfólk Tryggingastofnunar reiknar greiðslur út frá. Athygli er vakin á því að lífeyrisþegar bera sjálfir ábyrgð á því að réttar tekjuupplýsingar liggi fyrir hjá Tryggingastofnun hverju sinni. Með vandaðri tekjuáætlun er hægt að koma í veg fyrir ofgreiðslur og vangreiðslur sem þarf að leiðrétta síðar. Óski fólk eftir upplýsingum og aðstoð varðandi útfyllingu þá er fólk hvatt til að hafa samband við starfsfólk þjónustumiðstöðvar í síma 560 4460 næsta umboðsmann Tryggingastofnunar eða á netfangið tr@tr.is. Frekari upplýsingar eru á heimasíðu stofnunarinnar, www.tr.is. Þar er einnig að finna dæmi um útfyllingu tekjuáætlana.

Listin að lifa - maí 2008 ÁJA/kynningarmál


 




Þetta vefsvæði byggir á Eplica