Listin að lifa: Breytingar á lagaumhverfi, græna umslagið og fleira
Október 2007
Hér á eftir verða kynntar fyrir lesendum breytingar sem orðið hafa á lagaumhverfi stofnunarinnar sem fela í sér ný tækifæri m.a. fyrir eldri borgara. Einnig er vakin athygli á breyttu fyrirkomulagi við útsendingu greiðsluseðla frá stofnuninni sem nú eru aðgengilegir á vef ríkisskattstjóra. Loks liggur í loftinu flutningur á verkefnum tengdum afgreiðslu réttinda úr almannatryggingakerfinu á milli ráðuneyta. Í þessari grein er fjallað lítillega um áður nefndar breytingar og nýskipaða verkefnisstjórn forsætisráðuneytis sem hefur það verkefni að útfærastjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar hvað varðar almannatryggingar.
Atvinnutekjur 70 ára og eldri
Ný lög tóku gildi þann 1. júlí á þessu ári sem kveða á um að atvinnutekjur ellilífeyrisþega og vistmanna 70 ára og eldri hafi ekki áhrif á fjárhæð ellilífeyris, tekjutryggingar, heimilisuppbótar, vasapeninga eða vistunarframlags frá Tryggingastofnun né heldur greiðsluþátttöku þeirra í dvalarkostnaði á dvalar- og hjúkrunarheimilum fyrir aldraða. Atvinnutekjur þeirra sem eru 70 ára og eldri hafa því hvorki áhrif á lífeyrisgreiðslur eða kostnaðarþátttöku þeirra sjálfra né maka þeirra eftir 1. júlí sl.
Þetta þýðir svo dæmi sé tekið að sá sem er 70 ára eða eldri og hefur 200 þúsund króna atvinnutekjur á mánuði fær nú um 81 þúsund krónur í lífeyri frá Tryggingastofnun í stað þess að fá aðeins ríflega 41 þúsund krónur í lífeyri fyrir 1. júlí 2007. Rétt er að taka fram að þetta á aðeins við um atvinnutekjur - ekki t.d. fjármagnstekjur eða greiðslur úr lífeyrissjóðum. Dæmi þetta miðast við einstæðing með heimilisuppbót sem ekki hefur skattkort hjá Tryggingastofnun.
Tekjum lífeyrisþega er í samræmi við almannatryggingalög dreift jafnt yfir allt árið. Þrátt fyrir að það sé almennt betra fyrir þennan hóp ellilífeyrisþega að jafndreifa tekjum ársins þá er það ekki svo í öllum tilvikum. Því var sett inn í lögin bráðabirgðaákvæði sem gildir fyrir árið 2007 og kveður á um að ellilífeyrisþegar, 70 ára og eldri, geti óskað eftir því við Tryggingastofnun að tekjum þeirra og/eða maka verði skipt niður á tímabil fyrir og eftir gildistöku laganna eða 70 ára aldur, eftir því hvort er síðar.
Allir lífeyrisþegar sem eru fæddir 1937 eða fyrr eða makar þeirra - þó þeir séu yngri en 70 ára- , fengu sent bréf frá Tryggingastofnun þar sem þessi lagabreyting var kynnt. Gera má ráð fyrir að þessi lagabreyting geti mögulega haft áhrif á greiðslur tæplega 5.000 manns, sem er sá hópur þar sem greiðsluþegi og/eða maki hans eru með atvinnutekjur. Er þetta liður í stefnu nýrrar ríkisstjórnar um að draga úr vægi viðmiðunartekna gagnvart greiðslum lífeyristrygginga. Gert er ráð fyrir að árlegur kostnaður ríkissjóðs vegna þessa verði á bilinu 560 til 700 milljónir króna.
Lesendum er bent á að hafa samband ef einhverjar spurningar vakna. Það er hægt með því að koma í þjónustumiðstöðina eða umboð um land allt, hringja í síma 560-4460 eða senda fyrirspurnir á netfangið tr@tr.is.
Græna umslagið - greiðsluyfirlit lífeyristrygginga
Fyrirkomulagi á upplýsingum um mánaðarlegar greiðslur til lífeyrisþega var breytt í vor á þessu ári. Í stað mánaðarlegra greiðsluseðla var lífeyrisþegum nú sent eitt greiðsluyfirlit sem sýndi allar greiðslur og þær forsendur sem lágu að baki útreikningi á þeim yfir árið 2007. Greiðsluyfirlitið barst í „græna umslaginu” svokallaða en þannig umslag mun aftur berast lífeyrisþegum núna í lok árs og gilda fyrir næsta almanaksár.
Ef upplýsingar um breyttar forsendur sem hafa áhrif á bótarétt eða fjárhæðir bóta berast Tryggingastofnun innan hvers árs, verður sent út annað yfirlit. Greiðslur eru eftir sem áður lagðar inn á reikninga lífeyrisþega um hver mánaðamót þó ekki sé tilkynnt sérstaklega um hverja innborgun. Þess má geta að hægðarleikur er að prenta út seðlana af vef skattstjóra til að hafa á sínum stað í bókhaldsmöppunni. Til að nálgast mánaðarleg greiðsluyfirlit þarf veflykil skattsins, þann sama og notaður er við framtalsgerð. Á vefsíðunni www.skattur.is eru leiðbeiningar um það hvernig hægt að er að fá sendan nýjan veflykil ef sá gamli hefur glatast. Við bendum einnig á að með því að óska eftir því við starfsfólk Tryggingastofnunar eða umboð almannatrygginga um land allt eru greiðsluseðlar sendir heim í pósti sem áður fyrr. Tryggingastofnun hefur markað sér þá stefnu að auka markvisst rafræna þjónustu við viðskiptavini sína og er þetta stórt skref í átt að því markmiði.
Flutningur verkefna í félagsmálaráðuneyti
Í stjórnarsáttmála nýrrar ríkisstjórnar voru sett fram markmið sem gera ráð fyrir því að mál eldri borgara verði flutt milli ráðuneyta og verði framvegis sinnt af félagsmálaráðuneyti. Forsætisráðherra hefur nú skipað verkefnisstjórn til að þróa breytingar á almannatryggingakerfinu eins og kveðið er á um í stjórnarsáttmálanum. Nefndina skipa Bolli Bollason, ráðuneytisstjóri, forsætisráðuneyti, Hanna Katrín Friðriksson, aðstoðarmaður heilbrigðisráðherra, Berglind Ásgeirsdóttir, ráðuneytisstjóri, heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneyti, Sigurbjörg Sigurgeirsdóttir, stjórnsýsluráðgjafi, utanríkisráðuneyti og Ragnhildur Arnljótsdóttir, ráðuneytisstjóri, félagsmálaráðuneyti. Nefndinni til aðstoðar hefur forsætisráðherra enn fremur ráðið Ágúst Þór Jónsson og Sigurð Helgason sem ráðgjafa til að greina uppbyggingu almannatryggingakerfisins. Stefnt er að því að niðurstaða nefndarinnar liggi fyrir um áramót.
október 2007/Guðbjörg Guðmundsdóttir
