Listin að lifa: Kjarabót og bætt þjónusta
Febrúar 2007
Ellilífeyrisþegar mynda stærsta hópi viðskiptavina Tryggingastofnunar. Þennan hóp fyllir fólk með margvíslegar þarfir sem gerir kröfur um kjör og góða þjónustu. Fyrir starfsfólk Tryggingastofnunar er það áskorun að veita ellilífeyrisþegum þjónustu sem þeir eru ánægðir með. Í því felst meðal annars að bregðast hratt við breyttum forsendum við útreikninga á greiðslum og að gefa kost á fjölbreytilegum leiðum til samskipta.
Kjarabót með breyttum lögum
Breytt lög um almannatryggingar og málefni aldraðra tóku gildi 1. janúar sl. en Tryggingastofnun annast framkvæmd þeirra. Breytingarnar fela í sér töluverðar kjarabætur fyrir ellilífeyrisþega. Nefna má frítekjumark sem gerir öldruðum og öryrkjum kleift að vinna fyrir meiri tekjum en áður án þess að tekjutrygging þeirra skerðist. Einnig hefur einnig verið dregið úr tengingum við tekjur maka lífeyrisþega. Þá geta lífeyrisþegar dreift tekjum sem stafa af fjármagnstekjum og séreignarsparnaði, sem leystur hefur verið út í einu lagi, í allt að tíu ár. Möguleiki á að fresta töku lífeyris til 72 ára aldurs getur hækkað bætur viðkomandi um 30% á tímabilinu sem töku lífeyris er frestað.
Aukin rafræn þjónusta
Hjá Tryggingastofnun er unnið að því að auðvelda almenningi aðgengi að þeim réttindum og þjónustu sem stofnuninni hefur verið falið að annast.
Stefnt er að því að auka rafræna þjónustu þannig að þeir sem eiga erindi við stofnunina geti sinnt erindum sínum í gegnum Netið í stað þess að fara á þjónustustaði. Þeir sem það kjósa geta þó áfram sótt þjónustu á hefðbundinn hátt með aðstoð síma, bréfasendinga eða með því að mæta á staðinn.
Nýr vefur var opnaður á www.tr.is í desember sl. Þjónustan sem hægt er að sækja á vefinn, verður smám saman fjölbreyttari. Um nokkurt skeið hefur verið hægt að ná í eyðublöð þangað og sækja um evrópska sjúkratryggingaskírteinið. Áætlað er að birting greiðsluseðla lífeyristrygginga á þjónustuvef RSK hefjist 1. mars 2007. Með tilkomu viðurkenndra rafrænna skilríkja sem ríkisstjórnin og bankarnir stefna á að innleiða verður mögulegt að birta persónubundnar upplýsingar á vefnum og undirrita umsóknir á rafrænan máta.
Afsláttarkort
Elli- og örorkulífeyrisþegar eiga rétt á afsláttarkorti þegar þeir hafa greitt 4.500 kr. innan sama almanaksárs fyrir heilbrigðisþjónustu. Afsláttarkortið er sent sjálfkrafa heim til þeirra sem ná hámarksgreiðslum ef upplýsingar um það eru til hjá Tryggingastofnun. Þar sem Tryggingastofnun hefur á takmörkuðum upplýsingum að byggja er mikilvægt að geyma kvittanir og framvísa á þjónustustöðumTryggingastofnunar til að fá afsláttarkortið. Endurgreiðslur eru lagðar beint inn á bankareikninga einstaklinga. Nánari upplýsingar um afsláttarkortið eru á www.tr.is eða með því að hafa samband við þjónustustaði.
Nýir samningar
Samkvæmt samkomulagi ríkisstjórnarinnar og Landssambands eldri borgara sem gert var 19. júlí sl. verður ársframlag til hjálpartækjaþjónustu Tryggingastofnunar við aldraða, sérstaklega varðandi öryggishnappa, aukið um 16 til 19 milljónir króna á ári á næstu fjórum árum. Framlagið mun einnig nýtast til að auðvelda fólki sjálfstæða búsetu m.a. með kaupum á þjónustu vaktstöðva, uppsetningu viðvörunarkerfa og úthlutun sérstakra rafknúinna hjólastóla.
Frekari upplýsingar um efni greinarinnar má finna á www.tr.is en einnig er hægt að hringja í þjónustusíma Tryggingastofnunar eða senda póst á tr@tr.is.
27. febrúar 2007/ Þorgerður Ragnarsdóttir
